Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 5. ágúst – 1Jóh 4.1–10

Þið elskuðu, trúið ekki öllum sem segjast hafa andann, reynið þá heldur og komist að því hvort andinn sé frá Guði. Því margir falsspámenn eru farnir út í heiminn. Af þessu getið þið þekkt anda Guðs: Sérhver andi, sem játar að Jesús sé Kristur kominn sem maður, er frá Guði. En sérhver andi sem ekki játar Jesú er ekki frá Guði. Hann er andkristsins andi sem þið hafið heyrt um að komi og nú þegar er hann í heiminum.
Börnin mín, þið eruð af Guði og hafið sigrað falsspámennina því að andinn sem er í ykkur er öflugri en andinn sem er í heiminum. Falsspámennirnir eru af heiminum. Þess vegna tala þeir eins og heimurinn talar og heimurinn hlýðir á þá. Við erum af Guði. Hver sem þekkir Guð hlýðir á okkur. Sá sem ekki er af Guði hlýðir ekki á okkur. Af þessu þekkjum við andann sem flytur sannleikann og andann sem fer með lygar.
Þið elskuðu, elskum hvert annað því að kærleikurinn er frá Guði kominn og hver sem elskar er barn Guðs og þekkir Guð. Sá sem ekki elskar þekkir ekki Guð því að Guð er kærleikur. Í því birtist kærleikur Guðs til okkar að Guð hefur sent einkason sinn í heiminn til þess að hann skyldi veita okkur nýtt líf. Þetta er kærleikurinn: Ekki að við elskuðum Guð heldur að hann elskaði okkur og sendi son sinn til að vera friðþæging fyrir syndir okkar.

Biblíulestur 17. ágúst – Slm 74.12-23

12Guð er konungur minn frá ómunatíð, hann, sem færir jörðinni hjálpræði. 13Þú klaufst hafið með mætti þínum, þú molaðir hausa drekanna á hafinu, 14þú braust hausa Levjatans, [ gafst hann [...]

Biblíulestur 15. ágúst – 2Kon 14.1-14

Amasía Júdakonungur 1 Á öðru stjórnarári Jóasar Jóahassonar Ísraelskonungs varð Amasía Jóasson konungur yfir Júda. 2 Hann var tuttugu og fimm ára, þegar hann varð konungur, og hann ríkti tuttugu [...]

Biblíulestur 14. ágúst – 2Kon 13.10-25

Jóas Ísraelskonungur 10 Á þrítugasta og sjöunda stjórnarári Jóasar Júdakonungs varð Jóas Jóahasson konungur yfir Ísrael. Hann ríkti sextán ár í Samaríu. 11 Hann gerði það sem illt var í [...]

Biblíulestur 13. ágúst – 2Kon 13.1-9

Jóahas Ísraelskonungur 1 Á tuttugasta og þriðja stjórnarári Jóasar Ahasíasonar, konungs í Júda, varð Jóahas Jehúson konungur yfir Ísrael. Hann ríkti sautján ár í Samaríu. 2 Hann gerði það sem [...]

Fara efst