Amasía Júdakonungur

1 Á öðru stjórnarári Jóasar Jóahassonar Ísraelskonungs varð Amasía Jóasson konungur yfir Júda. 2 Hann var tuttugu og fimm ára, þegar hann varð konungur, og hann ríkti tuttugu og níu ár í Jerúsalem. Móðir hans hét Jóaddín og var frá Jerúsalem.
3 Hann gerði það sem rétt var í augum Drottins, þó ekki eins og Davíð, forfaðir hans. Hann breytti í öllu eins og Jóas faðir hans. 4 Fórnarhæðirnar hurfu þó ekki og fólkið hélt áfram að færa sláturfórnir og reykelsisfórnir á hæðunum.
5 Þegar Amasía var orðinn fastur í sessi sem konungur lét hann taka þá af embættismönnum sínum af lífi sem drepið höfðu föður hans, konunginn. 6 Þó lét hann ekki lífláta syni morðingjanna vegna þess sem skrifað stendur í lögmálsbók Móse þar sem Drottinn mælir svo fyrir: „Ekki skal drepa feður fyrir afbrot sonanna né syni fyrir afbrot feðranna, heldur skal hver maður deyja fyrir eigin afbrot.“
7 Það var hann sem sigraði Edómíta í Saltdalnum, tíu þúsund menn, og tók borgina Sela með áhlaupi. Hann nefndi hana Joktel og það heitir hún enn í dag.
8 Amasía sendi nú menn með þessi boð til Jóasar Jóahassonar, Jehúsonar, Ísraelskonungs: „Nú skulum við reyna með okkur.“ 9 Þá sendi Jóas, konungur Ísraels, þessi boð til Amasía, konungs í Júda: „Þistillinn á Líbanon sendi sedrustrénu á Líbanon þessi skilaboð: Gefðu syni mínum dóttur þína að konu. En villidýrin á Líbanon hlupu þar hjá og tróðu þistilinn niður. 10 Þú hefur gersigrað Edóm og því ofmetnast hjarta þitt. Njóttu frægðarinnar og sittu heima. Hvers vegna storkarðu gæfunni þér og Júda til falls?“
11 En Amasía vildi ekki hlusta. Hélt þá Jóas Ísraelskonungur af stað og laust þeim Amasía Júdakonungi saman við Bet Semes sem heyrir undir Júda. 12 Júdamenn biðu lægri hlut fyrir Ísraelsmönnum og flýðu til tjalda sinna.
13 Jóas Ísraelskonungur tók Amasía Júdakonung, son Jóasar Ahasíasonar, til fanga við Bet Semes. Síðan kom hann til Jerúsalem og reif niður múra Jerúsalem frá Efraímshliði að hornhliðinu, fjögur hundruð álnir. 14 Hann tók með sér allt gull og silfur og öll áhöld sem fundust í musteri Drottins og í fjárhirslum konungshallarinnar. Hann tók einnig gísla og sneri aftur til Samaríu.