Biblíulestur – 6. ágúst – 1Jóh 4.11–21
Þið elskuðu, fyrst Guð hefur elskað okkur svo mikið þá ber okkur einnig að elska hvert annað. Enginn hefur nokkurn tíma séð Guð. Ef við elskum hvert annað þá er Guð í okkur og kærleikur hans er fullkomnaður í okkur. Guð hefur gefið okkur anda sinn og þannig vitum við að við erum í honum og hann í okkur. Við höfum séð og vitnum að faðirinn hefur sent soninn til að vera frelsari heimsins. Hver sem játar að Jesús sé sonur Guðs, í honum er Guð stöðugur og hann í Guði. Við þekkjum kærleikann, sem Guð hefur á okkur, og trúum á hann.
Guð er kærleikur og sá sem er stöðugur í kærleikanum er stöðugur í Guði og Guð er stöðugur í honum. Fáum við elskað hvert annað og lifað eins og Kristur lifði hér á jörð, verðum við full djörfungar á degi dómsins. Ótti er ekki í elskunni. Fullkomin elska rekur út óttann. Því að óttinn býst við hegningu en sá sem óttast er ekki fullkominn í elskunni.
Við elskum því að Guð elskaði okkur að fyrra bragði. Ef einhver segir: „Ég elska Guð,“ en hatar trúsystkin sín er sá lygari. Því að sá sem elskar ekki bróður sinn eða systur, sem hann hefur séð, getur ekki elskað Guð sem hann hefur ekki séð. Og þetta boðorð höfum við frá honum, að sá sem elskar Guð á einnig að elska bróður sinn og systur.
Biblíulestur 24. ágúst – Slm 75.1-11
1 Til söngstjórans. Lag: Spill eigi. Asafssálmur. Ljóð. 2Vér þökkum þér, Guð, vér þökkum. Vér áköllum nafn þitt og segjum frá undraverkum þínum. 3„Þegar mér þykir tími til kominn dæmi [...]
Biblíulestur 23. ágúst – Lúk 16.1-13
Ger reikningsskil 1 Enn sagði Jesús við lærisveina sína: „Maður nokkur ríkur hafði ráðsmann og var honum sagt að ráðsmaðurinn sóaði eigum hans. 2 Ríki maðurinn lét kalla ráðsmanninn fyrir [...]
Biblíulestur 22. ágúst – Lúk 15.11-32
Tveir synir 11 Enn sagði Jesús: „Maður nokkur átti tvo sonu. 12 Sá yngri þeirra sagði við föður sinn: Faðir, lát mig fá þann hluta eignanna sem mér ber. Og [...]
Biblíulestur 21. ágúst – Lúk 15.1-10
Týndur sauður 1 Allir tollheimtumenn og bersyndugir komu til Jesú að hlýða á hann 2 en farísear og fræðimenn ömuðust við því og sögðu: „Þessi maður tekur að sér syndara [...]
Biblíulestur 20. ágúst – Lúk 14.15-35
Vonsvikinn veitandi 15 Þegar einn þeirra, er að borði sátu, heyrði þetta sagði hann við Jesú: „Sæll er sá sem situr til borðs í Guðs ríki.“ 16 Jesús sagði við [...]
Biblíulestur 19. ágúst – Lúk 14.1-14
Gátu engu svarað 1 Hvíldardag nokkurn kom Jesús í hús eins af höfðingjum farísea til máltíðar og höfðu menn gætur á honum. 2 Þá var þar frammi fyrir honum maður [...]