Biblíulestur – 7. ágúst – 1Jóh 5.1–12
Hver sem trúir að Jesús sé Kristur er barn Guðs og hver sem elskar föðurinn elskar einnig barn hans. Við vitum að við elskum börn Guðs af því að við elskum Guð og breytum eftir boðorðum hans. Því að elskan til Guðs birtist í að við höldum boðorð hans. Og boðorð hans eru ekki þung því að sérhvert barn Guðs sigrar heiminn og trú okkar er sigurinn, hún hefur sigrað heiminn.
Hver er sá sem sigrar heiminn nema sá sem trúir að Jesús sé sonur Guðs?
Hann er sá sem kom með vatni og blóði, Jesús Kristur. Ekki með vatninu eingöngu heldur með vatninu og með blóðinu. Og andinn er sá sem vitnar því að andinn er sannleikurinn. Þrír eru þeir sem vitna [í himninum: Faðirinn, orðið og heilagur andi, og þessir þrír eru eitt. Og þeir eru þrír sem vitna á jörðunni:] Andinn og vatnið og blóðið og þeim þremur ber saman. Við tökum manna vitnisburð gildan en vitnisburður Guðs er meiri. Þetta er vitnisburður Guðs sem hann hefur vitnað um son sinn. Sá sem trúir á son Guðs hefur vitnisburðinn innra með sér. Sá sem ekki trúir Guði hefur gert hann að lygara af því að hann hefur ekki trúað á þann vitnisburð sem Guð hefur vitnað um son sinn. Og þetta er vitnisburðurinn: Guð hefur gefið okkur eilíft líf og þetta líf er í syni hans. Sá sem hefur soninn á lífið, sá sem ekki á son Guðs á ekki lífið.
Biblíulestur 30. ágúst – Lúk 18.18-34
Auðugur höfðingi 18 Höfðingi nokkur spurði Jesú: „Góði meistari, hvað á ég að gera til þess að öðlast eilíft líf?“ 19 Jesús sagði við hann: „Hví kallar þú mig góðan? [...]
Biblíulestur 29. ágúst – Lúk 18.1-17
Eigi þreytast að biðja 1 Þá sagði Jesús þeim dæmisögu um það hvernig þeir skyldu stöðugt biðja og eigi þreytast: 2 „Í borg einni var dómari sem hvorki óttaðist Guð [...]
Biblíulestur 28. ágúst – Lúk 17.20-37
Innra með yður 20 Farísear spurðu Jesú hvenær Guðs ríki kæmi. Hann svaraði þeim: „Guðs ríki kemur ekki þannig að á því beri. 21 Ekki munu menn segja: Sjá, þar [...]
Biblíulestur 27. ágúst – Lúk 17.1-19
Vei þeim er veldur 1 Jesús sagði við lærisveina sína: „Eigi verður umflúið að menn séu tældir til falls en vei þeim sem því veldur. 2Betra væri honum að hafa [...]
Biblíulestur 26. ágúst – Lúk 16.14-31
Guð þekkir hjörtu yðar 14 En farísearnir, sem voru menn fégjarnir, heyrðu þetta og gerðu gys að Jesú. 15 En hann sagði við þá: „Þér eruð þeir sem réttlætið sjálfa [...]
Biblíulestur 25. ágúst – Matt 11.16-24
16 Við hvað á ég að líkja þessari kynslóð? Lík er hún börnum sem á torgum sitja og kallast á: 17 Vér lékum fyrir yður á flautu og ekki vilduð [...]