Biblíulestur – 8. ágúst – 1Jóh 5.13–21
Þetta hef ég skrifað ykkur sem trúið á nafn Guðs sonar til þess að þið vitið að þið eigið eilíft líf. Og þetta er traustið sem við berum til hans: Ef við biðjum um eitthvað eftir hans vilja, þá heyrir hann okkur. Og ef við vitum að hann bænheyrir okkur um hvað sem við biðjum, þá vitum við að við höfum þegar öðlast það sem við báðum hann um.
Ef einhver sér bróður sinn eða systur drýgja synd, sem leiðir ekki til dauða, þá skal hann biðja Guð og hann mun gefa líf þeim sem syndgar ekki til dauða. Til er synd sem leiðir til dauða. Fyrir henni segi ég ekki að hann skuli biðja. Allt ranglæti er synd en til er synd sem ekki leiðir til dauða.
Við vitum að börn Guðs syndga ekki, hann sem er sonur Guðs varðveitir þau og hinn vondi snertir þau ekki.
Við vitum að við erum Guðs eign og allur heimurinn er á valdi hins vonda. Við vitum að sonur Guðs er kominn og hefur gefið okkur skilning til þess að við þekkjum sannan Guð. Við lifum í hinum sanna Guði, í syni hans Jesú Kristi. Hann er hinn sanni Guð og eilífa lífið.
Börnin mín, gætið ykkar á falsguðunum.
Biblíulestur 5. september – Lúk 19.45-20.8
19. kafli Hús mitt bænahús 45 Þá gekk hann inn í helgidóminn og tók að reka út þá er voru að selja 46 og mælti við þá: „Ritað er: Hús [...]
Biblíulestur 4. september – Lúk 19.28-44
Jesú fagnað 28 Þá er Jesús hafði þetta mælt hélt hann á undan áfram upp til Jerúsalem. 29 Þegar hann nálgaðist Betfage og Betaníu við Olíufjallið, sem svo er nefnt, [...]
Biblíulestur 3. september – Lúk 19.11-27
Pundin 11 Jesús sagði þeim sem höfðu hlýtt á hann aðra dæmisögu því að hann var í nánd við Jerúsalem og þeir ætluðu að Guðs ríki mundi þegar birtast. 12 [...]
Biblíulestur 2. september – Lúk 18.35-19.10
18. kafli Blindur maður 35 Svo bar við, er Jesús nálgaðist Jeríkó, að blindur maður sat þar við veginn og betlaði. 36 Hann heyrði að mannfjöldi gekk hjá og spurði [...]
Biblíulestur 1. september – Lúk 7.36-50
Syndir fyrirgefnar 36 Farísei nokkur bauð Jesú til máltíðar og hann fór inn í hús faríseans og settist til borðs. 37 En kona ein í bænum, sem var bersyndug, varð [...]
Biblíulestur 31. ágúst – Okv 25.1-13
1 Þetta eru líka orðskviðir Salómons sem menn Hiskía Júdakonungs söfnuðu: 2Guði er sæmd að dylja mál, konungum sæmd að útkljá mál. 3Eins og hæð himins og dýpt jarðar, svo [...]