Biblíulestur – 9. ágúst – Slm 105.1–15
Þakkið Drottni, ákallið nafn hans,
gerið máttarverk hans kunn meðal þjóðanna.
Syngið honum lof, leikið fyrir hann,
segið frá öllum máttarverkum hans.
Hrósið yður af hans heilaga nafni,
hjarta þeirra sem leita Drottins gleðjist.
Leitið Drottins og máttar hans,
leitið sífellt eftir augliti hans.
Minnist dásemdarverkanna sem hann vann,
tákna hans og dómanna sem hann kvað upp,
þér niðjar Abrahams, þjóns hans,
synir Jakobs sem hann útvaldi.
Hann er Drottinn, Guð vor,
um víða veröld gilda boð hans.
Hann minnist að eilífu sáttmála síns,
fyrirheitanna sem hann gaf þúsund kynslóðum,
sáttmálans sem hann gerði við Abraham
og eiðsins sem hann sór Ísak
og setti sem lög fyrir Jakob,
ævarandi sáttmála fyrir Ísrael.
Hann sagði: „Þér fæ ég Kanaansland,
það skal vera erfðahlutur yðar,“
þegar þeir voru fámennur hópur
og bjuggu þar sem fáliðaðir útlendingar.
Þeir reikuðu frá einni þjóð til annarrar,
frá einu konungsríki til annars.
Hann leið engum að kúga þá
en hegndi konungum þeirra vegna.
„Snertið eigi mína smurðu
og gerið eigi spámönnum mínum mein.“
Biblíulestur 11. september – Lúk 21.12-28
Tækifæri til vitnisburðar 12 En á undan öllu þessu munu menn leggja hendur á yður, ofsækja yður, færa yður fyrir samkundur og í fangelsi og draga yður fyrir konunga og [...]
Biblíulestur 10. september – Lúk 20.41-21.11
20. kafli Kristur er Drottinn 41 Jesús sagði við þá: „Hvernig geta menn sagt að Kristur sé sonur Davíðs? 42 Davíð segir sjálfur í Sálmunum: Drottinn sagði við minn drottin: [...]
Biblíulestur 9. september – Lúk 20.27-40
Guð lifenda 27 Þá komu nokkrir saddúkear, en þeir neita því að upprisa sé til, og sögðu við Jesú: 28 „Meistari, Móse segir okkur í ritningunum að deyi maður kvæntur [...]
Biblíulestur 8. september – Lúk 13.10-17
Leyst úr fjötrum 10 Jesús var að kenna á hvíldardegi í samkundu einni. 11 Þar var þá kona nokkur. Í átján ár hafði hún verið sjúk. Hún var kreppt og [...]
Biblíulestur 7. september – Slm 76.1-13
1 Til söngstjórans. Með strengjaleik. Asafssálmur. Ljóð. 2Guð gerði sig kunnan í Júda, nafn hans er mikið í Ísrael. 3Tjaldbúð hans er í Salem, bústaður hans á Síon 4þar sem [...]
Biblíulestur 6. september – Lúk 20.9-26
Vondir vínyrkjar 9 Og Jesús tók að segja fólkinu dæmisögu þessa: „Maður nokkur plantaði víngarð og seldi hann vínyrkjum á leigu, fór síðan úr landi til langdvala. 10 Á settum [...]