Biblíulestur – 10. ágúst – Matt 7.15–23
Varist falsspámenn. Þeir koma til yðar í sauðaklæðum en innra eru þeir gráðugir vargar. Af ávöxtum þeirra skuluð þér þekkja þá. Hvort lesa menn vínber af þyrnum eða fíkjur af þistlum? Þannig ber sérhvert gott tré góða ávöxtu en slæmt tré vonda. Gott tré getur ekki borið vonda ávöxtu, ekki heldur slæmt tré góða ávöxtu. Hvert það tré, sem ber ekki góðan ávöxt, verður upp höggvið og því í eld kastað. Af ávöxtum þeirra skuluð þér því þekkja þá.
Ekki mun hver sá sem segir við mig: Drottinn, Drottinn, ganga inn í himnaríki heldur sá einn er gerir vilja föður míns sem er á himnum.
Margir munu segja við mig á þeim degi: Drottinn, Drottinn, höfum vér ekki í þínu nafni flutt orð Guðs, rekið út illa anda og gert mörg kraftaverk? Þá mun ég votta þetta: Aldrei þekkti ég yður. Farið frá mér, illgjörðamenn.
Biblíulestur 17. september – Míka 1.8-16
8Vegna þessa harma ég og kveina, geng berfættur og klæðlaus, ýlfra eins og sjakalinn, væli eins og uglan. 9Því að sár Samaríu er ólæknandi, það nær allt til Júda, allt [...]
Biblíulestur 16. september – Míka 1.1-7
1 Orð Drottins sem kom til Míka frá Móreset á dögum Jótams, Akasar og Hiskía, konunga í Júda, það er honum vitraðist um Samaríu og Jerúsalem. Guð stígur ofan til [...]
Biblíulestur 15. september – Matt 5.43-48
43 Þér hafið heyrt að sagt var: Þú skalt elska náunga þinn og hata óvin þinn. 44 En ég segi yður: Elskið óvini yðar og biðjið fyrir þeim sem ofsækja [...]
Biblíulestur 14. september – Slm 77.1-11
1 Til söngstjórans. Fyrir Jedútún.[ Asafssálmur. 2Ég kalla til Guðs og hrópa, kalla til Guðs svo að hann heyri til mín. 3Í neyð minni leita ég til Drottins, rétti út [...]
Biblíulestur 13. september – Lúk 22.7-30
Búið til páskamáltíðar 7 Þegar sá dagur ósýrðu brauðanna kom er slátra skyldi páskalambinu 8 sendi Jesús þá Pétur og Jóhannes og sagði: „Farið og búið til páskamáltíðar fyrir okkur.“ [...]
Biblíulestur 12. september – Lúk 21.29-22.6
21. kafli Gætið að fíkjutrénu 29 Jesús sagði þeim og líkingu: „Gætið að fíkjutrénu og öðrum trjám. 30 Þegar þér sjáið þau farin að bruma, þá vitið þér af sjálfum [...]