Biblíulestur – 11. ágúst – 2Jóh 1–13
Öldungurinn heilsar hinni útvöldu frú og börnum hennar sem ég elska sannarlega. Og ekki ég einn heldur einnig allir sem þekkja sannleikann. Við gerum það sakir sannleikans sem í okkur er og mun vera hjá okkur til eilífðar. Náð, miskunn og friður frá Guði föður og frá Jesú Kristi, syni föðurins, mun vera með okkur í sannleika og kærleika.
Það hefur glatt mig mjög að ég hef fundið nokkur barna þinna sem lifa í sannleikanum eins og faðirinn bauð okkur. Og nú bið ég þig, frú mín góð, og er þá ekki að skrifa þér nýtt boðorð, heldur það er við höfðum frá upphafi: Við skulum elska hvert annað. Kærleikurinn felst í að við lifum eftir boðorðum hans. Þetta er boðorðið, eins og þið heyrðuð það frá upphafi til þess að þið skylduð breyta samkvæmt því.
Því að margir afvegaleiðendur eru farnir út í heiminn sem ekki játa að Jesús sé Kristur, kominn sem maður. Þetta er afvegaleiðandinn og andkristurinn. Hafið gætur á sjálfum ykkur að þið missið ekki það sem við höfum áunnið heldur megið fá full laun. Sérhver sem fer sínu fram og er ekki staðfastur í kenningu Krists á ekki Guð. Hinn sem er staðfastur í kenningunni á bæði föðurinn og soninn. Ef einhver kemur til ykkar og boðar aðra kenningu, þá takið hann ekki á heimili ykkar og bjóðið hann ekki velkominn. Því að sá sem býður hann velkominn tekur þátt í hans vondu verkum.
Þótt ég hafi margt að rita ykkur vildi ég ekki gera það með pappír og bleki heldur vona að koma til ykkar og sjá ykkur og tala við ykkur til þess að gleði okkar verði fullkomin. Börn systur þinnar, hinnar útvöldu, biðja að heilsa þér.
Biblíulestur 23. september – Míka 4.9-14
9En hví hljóðar þú hástöfum? Áttu þér engan konung? Eru ráðgjafar þínir á burt? Er það vegna þess sem þú engist sem jóðsjúk kona? 10Þú skalt engjast og hljóða, dóttirin [...]
Biblíulestur 22. september – Jóhannes 5.1-15
Við Betesdalaug 1 Þessu næst var ein af hátíðum Gyðinga og Jesús fór upp til Jerúsalem. 2 Við Sauðahliðið í Jerúsalem er laug sem kallast á hebresku Betesda. Þar eru [...]
Biblíulestur 21. september – Slm 77.12-21
12Ég minnist verka Drottins, já, ég vil minnast fyrri dáða þinna, 13ég vil hugleiða öll þín verk, íhuga stórvirki þín. 14Guð, helgur er vegur þinn. Hvaða guð er svo mikill [...]
Biblíulestur 20. september – Míka 3.9-4.8
3. kafli Gegn mútuþægum leiðtogum og prestum 9Heyrið þetta, leiðtogar Jakobs ættar, höfðingjar Ísraels ættar, þér sem hafið andstyggð á réttlæti og hallið hverju því sem rétt er, 10þér sem [...]
Biblíulestur 19. september – Míka 2.12-3.8
2. kafli Fyrirheit 12Ég mun safna yður öllum saman, Jakobs ætt, og smala saman sauðum Ísraels eins og sauðfé í rétt, eins og hjörð í haga, og þá verður kliðurinn [...]
Biblíulestur 18. september – Míka 2.1-11
Gegn ágirnd ofríkismanna 1Vei þeim sem efna til ranginda, hyggja á ill verk í hvílu sinni og vinna þau þegar dagur rennur, því að þess eru þeir megnugir. 2Þeir ágirnast [...]