Biblíulestur 21. september – Slm 77.12-21

2019-06-12T16:32:41+00:00Laugardagur 21. september 2019|

12Ég minnist verka Drottins,
já, ég vil minnast fyrri dáða þinna,
13ég vil hugleiða öll þín verk,
íhuga stórvirki þín.
14Guð, helgur er vegur þinn.
Hvaða guð er svo mikill sem vor Guð?
15Þú ert sá Guð sem vinnur máttarverk,
þú birtir mátt þinn meðal þjóðanna.
16Þú frelsaðir lýð þinn með armi þínum,
syni Jakobs og Jósefs. (Sela)
17Vötnin sáu þig, ó Guð,
vötnin sáu þig og skelfdust
og undirdjúpin skulfu.
18Vatnið streymdi úr skýjunum,
þrumuraust drundi úr skýjaþykkninu
og örvar þínar þutu.
19Þrumur þínar kváðu við,
leiftur lýstu upp heiminn,
jörðin skalf og nötraði.
20Leið þín lá gegnum hafið,
vegur þinn um mikil vötn,
en spor þín urðu ekki rakin.
21Þú leiddir lýð þinn eins og hjörð
með hendi Móse og Arons.

Title

Fara efst