Biblíulestur – 12. ágúst – 3Jóh 1–15
Öldungurinn heilsar elskuðum Gajusi sem ég ann í sannleika.
Ég bið þess, minn elskaði, að þér vegni vel í öllu, þú sért heill heilsu og þér líði vel í sál og sinni. Ég varð mjög glaður þegar bræður komu og greindu frá hve trúr þú ert sannleikanum og breytir eftir honum. Ég hef enga meiri gleði en þá að heyra að börnin mín hlýði sannleikanum.
Þú sýnir trúnað þinn, minn elskaði, í öllu sem þú vinnur fyrir söfnuðinn og jafnvel ókunna menn. Þeir hafa vitnað fyrir söfnuðinum um kærleika þinn. Þú gerir vel að greiða för þeirra eins og verðugt er í Guðs augum. Því að sakir nafns Jesú lögðu þeir af stað og þiggja ekki neitt af heiðnum mönnum. Þess vegna ber okkur að hjálpa þessum mönnum og verða þannig samverkamenn þeirra í þágu sannleikans.
Ég hef ritað nokkuð til safnaðarins en Díótrefes, sem vill vera fremstur meðal þeirra, tekur eigi mark á mér. Þess vegna ætla ég, ef ég kem, að benda á gjörðir hans, hvernig hann lætur ófrægja mig með ljótum orðum. Og ekki nægir honum þetta. Hann tekur ekki heldur á móti bræðrum sem koma. Og vilji aðrir gera það hindrar hann þá og rekur úr söfnuðinum.
Líktu ekki eftir því sem illt er, minn elskaði, heldur eftir því sem gott er. Sá sem gerir gott heyrir Guði til en sá sem gerir illt hefur ekki séð Guð.
Demetríus fær góðan vitnisburð hjá öllum, já, hjá sannleikanum sjálfum. Ég ber honum hið sama og þú veist að vitnisburður minn er sannur.
Ég hef margt að rita þér en vil ekki rita þér með bleki og penna. En ég vona að sjá þig bráðum og munum við þá talast við augliti til auglitis.
Friður sé með þér. Vinirnir biðja að heilsa þér. Heilsa þú vinunum hverjum fyrir sig.
Biblíulestur 29. september – Lúk 10.38-42
Eitt er nauðsynlegt 38 Á ferð þeirra kom Jesús í þorp nokkurt og kona að nafni Marta bauð honum heim. 39 Hún átti systur er María hét og settist hún [...]
Biblíulestur 28. september – Okv 25.14-28
14Ský og vindur en engin rigning, svo er sá sem hrósar sér af örlæti en gefur þó ekkert. 15Með þolinmæði má telja höfðingja hughvarf, mjúk tunga mylur bein. 16Finnir þú [...]
Biblíulestur 27. september – Míka 7.7-20
7En ég mæni í von til Drottins, bíð eftir Guði hjálpræðis míns. Guð minn mun heyra til mín. Von Síonar 8Hlakkaðu ekki yfir mér, fjandkona mín. Þótt ég falli rís [...]
Biblíulestur 26. september – Míka 7.1-6
Eintal spámannsins 1Vei mér. Fyrir mér er komið eins og þegar ávöxtum hefur verið safnað, og leitað er að eftirhreytum vínberjanna. Enginn klasi er eftir til að neyta, engar vorfíkjur [...]
Biblíulestur 25. september – Míka 6.1-16
Guð ákærir 1Heyrið það sem Drottinn segir: Flyt fjöllunum mál þitt, lát hæðirnar heyra raust þína. 2Fjöll, hlýðið á kæru Drottins, leggið við hlustir, undirstöður jarðarinnar, því að Drottinn flytur [...]
Biblíulestur 24. september – Míka 5.1-14
Friðarhöfðinginn frá Betlehem 1En þú, Betlehem í Efrata, ein minnsta ættborgin í Júda, frá þér læt ég þann koma er drottna skal í Ísrael. Ævafornt er ætterni hans, frá ómunatíð. [...]