Biblíulestur – 18. október – Slm 107.1–16
Þakkið Drottni því að hann er góður,
því að miskunn hans varir að eilífu.
Svo skulu hinir endurleystu Drottins segja,
þeir er hann hefur leyst úr nauðum
og safnað saman frá öðrum löndum,
frá austri og vestri, frá norðri og suðri.
Þeir reikuðu um eyðimörkina, um veglaus öræfin,
og fundu eigi leið til byggilegrar borgar.
Þá hungraði og þyrsti
og lífskraftur þeirra þvarr.
Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni,
hann bjargaði þeim úr þrengingum þeirra,
leiddi þá á réttan veg
svo að þeir komust til byggilegrar borgar.
Þeir skulu þakka Drottni miskunn hans
og dásemdarverk hans við mannanna börn
því að hann svalaði hinum þyrsta
og mettaði hungraðan gæðum.
Þeir sem sátu í sorta og svartnætti
voru fangar í eymd og járnum
því að þeir höfðu þrjóskast gegn boðorðum Guðs
og haft að engu ráð Hins hæsta.
Hann beygði hug þeirra með mæðu,
þeir hrösuðu og enginn kom til hjálpar.
Þeir hrópuðu til Drottins í neyð sinni,
hann bjargaði þeim úr þrengingum þeirra,
leiddi þá út úr sortanum og svartnættinu
og sleit sundur fjötra þeirra.
Þeir skulu þakka Drottni miskunn hans
og dásemdarverk hans við mannanna börn
því að hann braut eirhliðin
og mölvaði járnslárnar.
Biblíulestur 19. nóvember – Post 17.22-34
22 Þá sté Páll fram á miðri Aresarhæð og tók til máls: „Aþeningar, þið komið mér svo fyrir sjónir að þið séuð í öllum greinum miklir trúmenn 23 því að [...]
Biblíulestur 18. nóvember – Post 17.1-21
Uppþot í Þessaloníku 1 Þeir fóru nú um Amfípólis og Apollóníu og komu til Þessaloníku. Þar áttu Gyðingar samkundu. 2 Eftir venju sinni gekk Páll inn til þeirra og þrjá [...]
Biblíulestur 17. nóvember – Post 16.25-40
25 Um miðnætti báðust þeir Páll og Sílas fyrir og lofsungu Guði en bandingjarnir hlustuðu á þá. 26 Þá varð skyndilega landskjálfti mikill svo að grunnur fangelsisins riðaði. Jafnskjótt opnuðust [...]
Biblíulestur 16. nóvember – Post 16.11-24
Í Filippí 11 Nú lögðum við út frá Tróas, sigldum beint til Samóþrake en daginn eftir til Neapólis 12 og þaðan til Filippí. Hún er helsta borg í þessum hluta [...]
Biblíulestur 15. nóvember – Mt 25.1-13
1 Enn sagði Jesús: „Þá er líkt um himnaríki og tíu meyjar sem fóru til móts við brúðgumann með lampa sína. 2 Fimm þeirra voru fávísar en fimm hyggnar. 3 [...]
Biblíulestur 14. nóvember – Slm 105.36-45
36 Hann laust alla frumburði í landi þeirra til bana, frumgróða karlmennsku þeirra. 37 Síðan leiddi hann þá út með silfri og gulli og enginn af ættbálkum hans hrasaði. 38 [...]