Uppþot í Þessaloníku

1 Þeir fóru nú um Amfípólis og Apollóníu og komu til Þessaloníku. Þar áttu Gyðingar samkundu. 2 Eftir venju sinni gekk Páll inn til þeirra og þrjá hvíldardaga ræddi hann við þá og lagði út af ritningunum, 3 lauk þeim upp fyrir þeim og setti þeim fyrir sjónir að Kristur átti að líða og rísa upp frá dauðum. Hann sagði: „Jesús, sem ég boða ykkur, hann er Kristur.“ 4Nokkrir þeirra létu sannfærast og gengu til fylgis við Pál og Sílas, auk þess mikill fjöldi guðrækinna Grikkja og mikils háttar konur eigi allfáar.
5 En Gyðingar fylltust ofstæki og fengu með sér götuskríl, æstu til uppþota og hleyptu borginni í uppnám. Þustu þeir að húsi Jasonar og vildu færa Pál og Sílas fyrir borgarafund. 6En þegar þeir fundu þá ekki drógu þeir Jason og nokkra bræður fyrir borgarstjórana og hrópuðu: „Mennirnir, sem komið hafa allri heimsbyggðinni í uppnám, eru nú komnir hingað 7og Jason hefur tekið á móti þeim. Allir þessir breyta gegn boðum keisarans því þeir segja að annar sé konungur og það sé Jesús.“ 8 Og þeir vöktu óhug með fólkinu og einnig borgarstjórunum með þessum orðum. 9 Slepptu þeir ekki þeim Jasoni fyrr en þeir höfðu látið þá setja tryggingu.
10 En söfnuðurinn[ sendi þá Pál og Sílas þegar um nóttina til Beroju. Þegar þeir komu þangað gengu þeir inn í samkunduhús Gyðinga. 11 Þeir voru veglyndari þar en í Þessaloníku. Þeir tóku við orðinu með mesta áhuga og rannsökuðu daglega ritningarnar, hvort þessu væri þannig farið. 12 Margir Gyðingar tóku trú og einnig Grikkir ekki allfáir, tignar konur og karlar. 13 En er Gyðingar í Þessaloníku fréttu að Páll hefði einnig boðað orð Guðs í Beroju egndu þeir líka múginn þar til uppþota. 14 Þá sendi söfnuðurinn[ jafnskjótt Pál af stað til sjávar en Sílas og Tímóteus urðu eftir. 15 Leiðsögumenn Páls fylgdu honum allt til Aþenu og sneru aftur með boð til Sílasar og Tímóteusar að koma hið bráðasta til hans.

Páll í Aþenu

16 Meðan Páll beið þeirra í Aþenu var honum mikil skapraun að sjá að borgin var full af skurðgoðum. 17 Hann ræddi þá í samkundunni við Gyðinga og guðrækna menn og daglega á torginu við þá sem urðu á vegi hans. 18 En nokkrir heimspekingar, Epíkúringar og Stóumenn, áttu og í orðakasti við hann. Sögðu sumir: „Hvað mun skraffinnur sá hafa að flytja?“
Aðrir sögðu: „Hann virðist boða ókunna guði,“ því að hann flutti fagnaðarerindið um Jesú og upprisuna. 19 Og þeir tóku hann og fóru með hann á Aresarhæð[ og sögðu: „Getum við fengið að vita hver þessi nýja kenning er sem þú ferð með? 20 Því að eitthvað nýstárlegt flytur þú okkur til eyrna og okkur fýsir að vita hvað þetta er.“ 21 En allir Aþeningar og aðkomumenn þar gáfu sér ekki tóm til annars fremur en að segja eða heyra einhver nýmæli.