Biblíulestur – 19. október – Mrk 12.28–34
Þá kom til Jesú fræðimaður einn. Hann hafði hlýtt á orðaskipti þeirra og fann að Jesús hafði svarað þeim vel. Hann spurði: „Hvert er æðst allra boðorða?“
Jesús svaraði: „Æðst er þetta: Heyr, Ísrael! Drottinn, Guð vor, hann einn er Drottinn. Og þú skalt elska Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum huga þínum og öllum mætti þínum. Annað er þetta: Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig. Ekkert boðorð annað er þessum meira.“
Fræðimaðurinn sagði þá við Jesú: „Rétt er það, meistari, satt sagðir þú. Einn er Guð og enginn er Guð annar en hann. Og að elska hann af öllu hjarta, öllum skilningi og öllum mætti og elska náungann eins og sjálfan sig, það er öllum brennifórnum og sláturfórnum meira.“
Jesús sá að hann svaraði viturlega og sagði við hann: „Þú ert ekki fjarri Guðs ríki.“
Og enginn þorði framar að spyrja hann.
Biblíulestur 25. nóvember – Post 19.23-40
23 Í þann tíma urðu miklar æsingar út af veginum.[ 24 Demetríus hét maður og var silfursmiður. Hann bjó til eftirlíkingar úr silfri af musteri Artemisar og veitti smiðum eigi [...]
Biblíulestur 24. nóvember – Post 19.1-22
Í Efesus 1 Meðan Apollós var í Korintu fór Páll um upplöndin og kom til Efesus. Þar hitti hann fyrir nokkra lærisveina. 2 Hann sagði við þá: „Fenguð þið heilagan [...]
Biblíulestur 23. nóvember – Post 18.18-28
Til Sýrlands 18 Páll var þar enn um kyrrt allmarga daga, kvaddi síðan bræðurna og systurnar[ og sigldi til Sýrlands og með honum Priskilla og Akvílas. Lét hann áður skera [...]
Biblíulestur 22. nóvember – Mt 25.31-46
31 Þegar Mannssonurinn kemur í dýrð sinni og allir englar með honum, þá mun hann sitja í dýrðarhásæti sínu. 32 Allar þjóðir munu safnast frammi fyrir honum og hann mun [...]
Biblíulestur 21. nóvember – Slm 106.1-12
1Hallelúja. Þakkið Drottni því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu. 2Hver getur sagt frá máttarverkum Drottins, kunngjört allan lofstír hans? 3Sælir eru þeir sem gæta [...]
Biblíulestur 20. nóvember – Post 18.1-17
Páll í Korintu 1 Eftir þetta fór Páll frá Aþenu og kom til Korintu. 2 Þar hitti hann Gyðing nokkurn, Akvílas að nafni, ættaðan frá Pontus, nýkominn frá Ítalíu, og [...]