Páll í Korintu

1 Eftir þetta fór Páll frá Aþenu og kom til Korintu. 2 Þar hitti hann Gyðing nokkurn, Akvílas að nafni, ættaðan frá Pontus, nýkominn frá Ítalíu, og Priskillu konu hans en Kládíus hafði skipað svo fyrir að allir Gyðingar skyldu fara burt úr Róm. Páll fór til þeirra 3 og af því hann stundaði sömu iðn settist hann að hjá þeim og vann með þeim. Þeir voru tjaldgerðarmenn að iðn. 4 Hann ræddi við menn í samkunduhúsinu hvern hvíldardag og reyndi að sannfæra bæði Gyðinga og Grikki.
5 Þegar þeir Sílas og Tímóteus komu norðan frá Makedóníu gaf Páll sig allan að boðun orðsins og vitnaði fyrir Gyðingum að Jesús væri Kristur. 6 En er þeir snerust gegn honum og fóru að lastmæla hristi hann dustið af klæðum sínum og sagði: „Þið getið sjálfir ykkur um það kennt að þið farist. Ekki er mér um það að kenna. Upp frá þessu fer ég til heiðingjanna.“ 7Og hann fór þaðan og kom í hús manns nokkurs er hét Títus Jústus og sótti samkundu Gyðinga. Hús hans var hjá samkunduhúsinu. 8 Krispus samkundustjóri tók trú á Drottin og allt heimili hans og margir Korintumenn, sem heyrðu Pál tala, tóku trú og létu skírast.
9 En Drottinn sagði við Pál um nótt í sýn: „Óttast þú eigi, haltu ótrauður áfram að tala, þagna ekki. 10 Ég er með þér. Enginn skal ráðast að þér og vinna þér mein því að ég á margt fólk í þessari borg.“ 11 Hann var þar um kyrrt þrjú misseri og kenndi þeim orð Guðs.
12 En þegar Gallíón[ var landstjóri í Akkeu bundust Gyðingar samtökum gegn Páli, drógu hann fyrir dómstólinn 13 og sögðu: „Maður þessi tælir menn til að dýrka Guð á þann hátt sem stríðir gegn lögmálinu.“
14 Páll bjóst til að svara en þá sagði Gallíón við Gyðingana: „Væri hér um einhver lögbrot eða illvirki að ræða bæri mér að sinna ykkur, Gyðingar. 15 En fyrst það eru þrætur um orð og nöfn og lögmál ykkar þá ráðið sjálfir fram úr því. Dómari í þeim sökum vil ég ekki vera.“ 16Og hann rak þá burt frá dómstólnum. 17 Þá tóku þeir allir Sósþenes samkundustjóra og fóru að berja hann fyrir framan dómstólinn og lét Gallíón sig það engu skipta.