Biblíulestur – 20. október – 5Mós 26.10b–19
Þegar þú hefur sett körfuna niður frammi fyrir Drottni, Guði þínum, skaltu falla fram fyrir Drottin, Guð þinn. Síðan skaltu gleðjast yfir öllum þeim gæðum sem Drottinn, Guð þinn, hefur gefið þér og fjölskyldu þinni, bæði þú, Levítarnir og aðkomumennirnir sem búa hjá þér.
Þegar þú hefur greitt tíund af allri uppskeru þinni á þriðja árinu, tíundarárinu, og hefur fengið tíundina Levítanum, aðkomumanninum, munaðarleysingjanum og ekkjunni, svo að þau geti etið sig mett í borg þinni, skaltu segja frammi fyrir Drottni, Guði þínum: „Ég hef fjarlægt hin helguðu afgjöld úr húsi mínu og fengið þau Levítanum, aðkomumanninum, munaðarleysingjanum og ekkjunni, nákvæmlega eftir því boði sem þú hefur sett mér. Ég hef hvorki brotið gegn boðum þínum né gleymt neinu þeirra. Ég hef ekki etið neitt af tíundinni þegar ég hef verið í sorg. Ég hef ekki fjarlægt neitt af henni þegar ég hef verið óhreinn og ekki gefið dauðum manni neitt af henni. Ég hef hlýtt Drottni, Guði mínum, ég hef fylgt öllu sem þú hefur boðið mér. Lít niður úr þínum heilaga bústað, frá himninum, og blessaðu lýð þinn, Ísrael, og landið sem þú hefur gefið okkur eins og þú hést feðrum okkar, land sem flýtur í mjólk og hunangi.“
Í dag býður Drottinn, Guð þinn, þér að halda þessi lög og ákvæði. Þú skalt halda þau og framfylgja þeim af heilum huga og allri sálu þinni. Þú hefur í dag lýst yfir því að Drottinn sé Guð þinn og að þú viljir ganga á hans vegum, að þú viljir halda lög hans, boð og ákvæði og hlýða fyrirmælum hans.
Og Drottinn hefur í dag lýst yfir því að þú sért hans eignarlýður, eins og hann hét þér, og að þú eigir að halda öll boð hans. Hann mun hefja þig yfir allar þjóðir, sem hann hefur skapað, til lofgjörðar, frægðar og dýrðar, og þú skalt verða lýður, helgaður Drottni, Guði þínum, eins og hann hefur heitið.
Biblíulestur 1. desember – Neh 2.1-10
Nehemía fer til Jerúsalem 1 Í nísanmánuði, á tuttugasta stjórnarári Artaxerxesar konungs, þegar ég sá um vínföngin, tók ég vínið og rétti konungi. Konungur hafði ekki séð mig niðurdreginn áður [...]
Biblíulestur 30. nóvember – Neh 1.1-11
Fréttir frá Jerúsalem 1 Frásögn Nehemía Hakalíasonar. Svo bar við í kíslevmánuði, á tuttugasta stjórnarári Artaxerxesar konungs, þegar ég dvaldist í virkisborginni Súsa, 2 að Hananí, einn bræðra minna, kom [...]
Biblíulestur 1. sunnudag í aðventu – Lúk 4.16-21
16 Jesús kom til Nasaret, þar sem hann var alinn upp, og fór að vanda sínum á hvíldardegi í samkunduna og stóð upp til að lesa. 17 Var honum fengin [...]
Biblíulestur 28. nóvember – Okv 24.23-34
23 Þessi spakmæli eru líka eftir spekinga: Hlutdrægni í dómi er röng. 24 Þeim sem segir við hinn seka: „Þú hefur rétt fyrir þér,“ honum formæla menn og þjóðir fordæma [...]
Biblíulestur 27. nóvember – Post 20.18-38
18 Þegar þeir komu til hans sagði hann við þá: „Þið vitið hvernig ég hef hagað mér hjá ykkur allt frá þeim degi er ég kom fyrst til Asíu. 19 [...]
Biblíulestur 26. nóvember – Post 20.1-17
Til Makedóníu og Grikklands 1 Þegar þessum látum linnti sendi Páll eftir lærisveinunum, uppörvaði þá og kvaddi síðan og lagði af stað til Makedóníu. 2 Hann fór nú um þau [...]