Biblíulestur – 21. október – 5Mós 27.1–10
Móse og öldungar Ísraels gáfu fólkinu eftirfarandi fyrirmæli:
„Haldið öll þau fyrirmæli sem ég set ykkur í dag. Þegar þið eruð komin yfir Jórdan og inn í landið sem Drottinn, Guð þinn, gefur þér þá skalt þú reisa nokkra stóra steina. Þú skalt kalka þá að utan og skrifa á þá öll ákvæði þessa lögmáls þegar þú ert kominn yfir ána, svo að þú komist inn í landið sem Drottinn, Guð þinn, gefur þér, land sem flýtur í mjólk og hunangi, eins og Drottinn, Guð feðra þinna, hefur heitið þér.
Þegar þið eruð komin yfir Jórdan skuluð þið reisa þessa steina á Ebalfjalli, sem ég hef gefið ykkur fyrirmæli um í dag, og kalka þá. Þar skaltu einnig reisa Drottni, Guði þínum, altari. Steinana máttu ekki höggva með járnverkfærum. Úr óhöggnum steinum skaltu reisa altari Drottins, Guðs þíns. Á því skaltu færa Drottni, Guði þínum, brennifórnir. Þú skalt slátra á því dýrum til heillafórnar og matast þar og gleðjast frammi fyrir Drottni, Guði þínum. Á steinana skaltu skrifa öll ákvæði þessa lögmáls með skýru letri.“
Móse og Levítaprestarnir ávörpuðu allan Ísrael og sögðu: „Ver hljóður og hlýð á, Ísrael! Í dag ertu orðinn lýður Drottins, Guðs þíns. Þú átt að hlýða rödd Drottins, Guðs þíns, og fylgja boðum hans og lögum sem ég set þér í dag.“
Biblíulestur 7. desember – Neh 3.18-38
18 Næstir honum unnu bræður þeirra og fór Bavvaí Henadadsson, sá sem stjórnaði hinum helmingi Kegíluhéraðs, fyrir þeim. 19 Við hlið hans vann Eser Jesúason, höfðingi yfir Mispa, að viðgerð [...]
Biblíulestur 2. sunnudag í aðventu – Mark 13.31-37
31 Himinn og jörð munu líða undir lok en orð mín munu aldrei undir lok líða. Vakið 32 En þann dag eða stund veit enginn, hvorki englar á himni né [...]
Biblíulestur 5. desember – Slm 106.13-23
13En þeir gleymdu fljótt verkum hans, biðu ekki ráða hans. 14Þeir fylltust græðgi í eyðimörkinni og freistuðu Guðs í auðninni. 15Hann uppfyllti ósk þeirra en sendi þeim tærandi sjúkdóm. 16Þá [...]
Biblíulestur 4. desember – Neh 3.13-17
13 Hanún og íbúarnir í Sanóa gerðu við Dalshliðið. Þeir reistu það að nýju og komu fyrir í því vængjahurðum, lás og slagbröndum. Þeir gerðu einnig við þúsund álnir af [...]
Biblíulestur 3. desember – Neh 3.1-12
Endurreisn múra Jerúsalem 1 Eljasíb æðsti prestur og hinir prestarnir, embættisbræður hans, hófu verkið og endurreistu Sauðahliðið. Þeir endurnýjuðu það og komu vængjahurðum fyrir í því. Þeir héldu áfram að [...]
Biblíulestur 2. desember – Neh 2.11-20
Nehemía skoðar múrana 11 Eftir að ég kom til Jerúsalem var ég um kyrrt í þrjá daga. 12 Þá fór ég á fætur að næturlagi ásamt fáeinum mönnum en skýrði [...]