31 Himinn og jörð munu líða undir lok en orð mín munu aldrei undir lok líða.

Vakið

32 En þann dag eða stund veit enginn, hvorki englar á himni né sonurinn, enginn nema faðirinn. 33 Gætið yðar, vakið! Þér vitið ekki nær tíminn er kominn. 34 Svo er þetta sem maður fari úr landi, skilji við hús sitt og feli þjónum sínum umráðin, hverjum sitt verk. Dyraverðinum býður hann að vaka. 35 Vakið því, þér vitið ekki nær húsbóndinn kemur, að kveldi, á miðnætti, í óttu eða dögun. 36 Látið hann ekki finna yður sofandi þegar hann kemur allt í einu. 37 Það sem ég segi yður, það segi ég öllum: Vakið!“