Biblíulestur – 22. október – 5Mós 27.11–26
Sama dag gaf Móse fólkinu eftirfarandi fyrirmæli: „Þessir ættbálkar eiga að standa á Garísímfjalli til að blessa fólkið þegar þið eruð komin yfir Jórdan: Símeon, Leví, Júda, Íssakar, Jósef og Benjamín. En þessir ættbálkar eiga að standa á Ebalfjalli og lýsa yfir bölvun: Rúben, Gað, Asser, Sebúlon, Dan og Naftalí.
Síðan eiga Levítarnir að ávarpa alla Ísraelsmenn og hrópa hárri röddu:
Bölvaður er sá maður sem gerir skurðgoð eða steypt líkneski sem er Drottni viðurstyggð, handaverk smiðs, og reisir það á laun. Allt fólkið skal svara og segja: Amen.
Bölvaður er sá sem óvirðir föður sinn eða móður. Allt fólkið skal segja: Amen.
Bölvaður er sá sem færir landamerki nágranna síns úr stað. Allt fólkið skal segja: Amen.
Bölvaður er sá sem leiðir blindan mann af réttri leið. Allt fólkið skal segja: Amen.
Bölvaður er sá sem hallar rétti aðkomumanns, munaðarleysingja eða ekkju. Allt fólkið skal segja: Amen.
Bölvaður er sá sem leggst með konu föður síns því að hann hefur flett upp ábreiðu föður síns. Allt fólkið skal segja: Amen.
Bölvaður er sá sem hefur samræði við nokkra skepnu. Allt fólkið skal segja: Amen.
Bölvaður er sá sem leggst með systur sinni, hvort heldur hún er dóttir föður hans eða móður. Allt fólkið skal segja: Amen.
Bölvaður er sá sem leggst með tengdamóður sinni. Allt fólkið skal segja: Amen.
Bölvaður er sá sem vegur náunga sinn á laun. Allt fólkið skal segja: Amen.
Bölvaður er sá sem lætur múta sér til að vega saklausan mann. Allt fólkið skal segja: Amen.
Bölvaður er sá sem ekki virðir ákvæði þessara laga með því að fylgja þeim. Allt fólkið skal segja: Amen.“
Biblíulestur 3. sunnudag í aðventu – Lúk 3.1-18
Jóhannes skírir og kennir 1 Á fimmtánda stjórnarári Tíberíusar keisara, þegar Pontíus Pílatus var landstjóri í Júdeu en Heródes fjórðungsstjóri í Galíleu, Filippus, bróðir hans, í Ítúreu og Trakónítishéraði og [...]
Biblíulestur 12. desember – Slm 106.24-39
24 Þeir fyrirlitu hið unaðslega land og treystu ekki orðum hans, 25 mögluðu í tjöldum sínum og hlýddu ekki á boð Drottins. 26 Þá hóf hann hönd sína gegn þeim [...]
Biblíulestur 11. desember – Neh 7.4-73
Skráning leikmanna 4 Borgin var stór og víðáttumikil en fátt fólk bjó í henni og ekki höfðu myndast nýjar fjölskyldur. 5 Þá blés Guð minn mér því í brjóst að [...]
Biblíulestur 10. desember – Neh 6.1-7.3
6. kafli Andstaða gegn Nehemía 1 Nú fréttu Sanballat, Tobía, Arabinn Gesem og aðrir fjandmenn okkar að ég hefði endurreist múrinn og að engin skörð væru lengur í honum. Þá [...]
Biblíulestur 9. desember – Neh 5.1-19
Nehemía hjálpar fátækum 1 Nú tók fólkið, bæði karlmennirnir og konur þeirra, að kvarta sáran yfir ættbræðrum sínum, Gyðingunum. 2 Sumir sögðu: „Synir okkar og dætur eru of mörg til [...]
Biblíulestur 8. desember – Neh 4.1-17
1 Þegar Sanballat, Tobía, Arabar, Ammónítar og Asdódmenn fréttu að sár borgarmúra Jerúsalem greru, því að skörðin tóku nú að fyllast, urðu þeir afar reiðir. 2 Þeir gerðu allir samsæri [...]