Biblíulestur – 23. október – 1Þess 1.1–10
Páll, Silvanus og Tímóteus heilsa söfnuði Þessaloníkumanna sem er í Guði föður og Drottni Jesú Kristi. Náð sé með yður og friður.
Ég þakka ávallt Guði fyrir ykkur öll er ég minnist ykkar í bænum mínum. Ég minnist stöðugt fyrir augliti Guðs vors og föður hve mikið þið starfið í trúnni, stríðið í kærleikanum og eruð staðföst í voninni á Drottin vorn Jesú Krist. Guð elskar ykkur, systkin. Ég veit að hann hefur útvalið ykkur. Fagnaðarerindi mitt kom ekki til ykkar í orðum einum heldur í krafti og heilögum anda með fyllstu sannfæringu. Eins vitið þið hverju ég kom til vegar ykkar vegna. Þið hafið gerst eftirbreytendur mínir og Drottins. Þrátt fyrir mikla þrengingu tókuð þið á móti orðinu með fögnuði sem heilagur andi gefur. Þannig eruð þið orðin fyrirmynd öllum trúuðum í Makedóníu og í Akkeu. Frá ykkur hefur orð Drottins hljómað, ekki einungis í Makedóníu og Akkeu, heldur er trú ykkar á Guð kunn orðin alls staðar. Um það þarf ég ekki að fjölyrða. Allir segja frá því á hvern hátt ég kom til ykkar og hvernig þið sneruð ykkur til Guðs frá skurðgoðunum til þess að þjóna lifandi og sönnum Guði, og hvernig þið væntið nú sonar hans, frá himnum, Jesú, sem Guð vakti upp frá dauðum og mun frelsa okkur frá hinni komandi reiði.
Biblíulestur 19. desember – Slm 106.40-48
40 Þá blossaði reiði Drottins upp gegn lýð sínum og hann fékk andstyggð á arfleifð sinni. 41 Hann seldi þá öðrum þjóðum í hendur, hatursmenn þeirra drottnuðu yfir þeim, 42 [...]
Biblíulestur 18. desember – Neh 9.28-37
28 Um leið og þeir fengu frið frömdu þeir aftur illvirki fyrir augliti þínu. Þú yfirgafst þá í greipum fjandmanna sinna og þeir kúguðu þá. Þá hrópuðu þeir aftur til [...]
Biblíulestur 17. desember – Neh 9.22-27
22 Þú gafst þeim konungsríki og þjóðir og úthlutaðir þeim sem landamærahéruðum. Þannig tóku þeir land Síhons og land konungsins af Hesbon og land Ógs, konungs í Basan. 23 Þú [...]
Biblíulestur 16. desember – Neh 9.9-21
9Þú sást eymd feðra vorra í Egyptalandi og heyrðir neyðaróp þeirra við Sefhafið. 10Þú gerðir tákn og undur gegn faraó og öllum mönnum hans og allri þjóðinni í landi hans [...]
Biblíulestur 15. desember – Neh 8.13-9.8
8. kafli Laufskálahátíð 13 Á öðrum degi söfnuðust ættarhöfðingjar allrar þjóðarinnar, prestarnir og Levítarnir saman hjá Esra fræðimanni til þess að kynnast fyrirmælum lögmálsins. 14 Þá komust þeir að því [...]
Biblíulestur 14. desember – Neh 8.1-12
Lögbókin lesin og skýrð 1 Allt fólkið safnaðist saman eins og einn maður á torginu fyrir framan Vatnshliðið. Fólkið bað Esra fræðimann að koma með bókina sem lögmál Móse var [...]