18 Þegar þeir komu til hans sagði hann við þá: „Þið vitið hvernig ég hef hagað mér hjá ykkur allt frá þeim degi er ég kom fyrst til Asíu. 19 Ég þjónaði Drottni í allri auðmýkt með tárum og í raunum sem að mér hafa steðjað af launráðum Gyðinga. 20 Þið vitið að ég dró ekkert undan sem ykkur mátti að gagni verða heldur boðaði ykkur það og kenndi opinberlega og í heimahúsum 21 og brýndi fyrir Gyðingum og Grikkjum að snúa sér til Guðs og trúa á Drottin vorn Jesú. 22Nú er ég á leið til Jerúsalem, knúinn af andanum. Ekki veit ég hvað þar mætir mér 23 nema að heilagur andi birtir mér í hverri borg að fjötrar og þrengingar bíði mín. 24 En mér er líf mitt einskis virði fái ég aðeins að fullna skeið mitt og þá þjónustu sem Drottinn Jesús fól mér: Að bera vitni fagnaðarerindinu um Guðs náð.
25 Nú veit ég að þið munuð ekki framar sjá mig, enginn ykkar sem ég hef komið til og boðað ríkið. 26 Þess vegna vitna ég fyrir ykkur nú í dag að ekki er mig um að saka þótt einhver glatist 27 því að ég hef boðað ykkur allt Guðs ráð og ekkert dregið undan. 28 Hafið gát á sjálfum ykkur og allri hjörðinni sem heilagur andi fól ykkur til umsjónar. Verið hirðar kirkju Guðs sem hann hefur aflað sér með sínu eigin blóði. 29 Ég veit að skæðir vargar munu koma inn á ykkur þegar ég er farinn og eigi þyrma hjörðinni. 30 Og úr hópi sjálfra ykkar munu koma menn sem flytja rangsnúna kenningu til að tæla lærisveinana á eftir sér. 31Vakið því og minnist þess að ég hvatti sérhvern ykkar dag og nótt með tárum í þrjú ár. 32 Og nú fel ég ykkur Guði og orði náðar hans sem getur styrkt trú ykkar og veitt ykkur hlutdeild í ríki hans ásamt öllum þeim sem helgaðir eru. 33 Eigi girntist ég silfur né gull né klæði nokkurs manns. 34 Sjálfir vitið þið að þessar hendur unnu fyrir öllu því er ég þurfti með og þeir er með mér voru. 35 Í öllu sýndi ég ykkur að með því að vinna þannig ber okkur að annast óstyrka og minnast orða Drottins Jesú sjálfs er hann sagði: Sælla er að gefa en þiggja.“
36 Þegar hann hafði þetta mælt féll hann á kné og baðst fyrir ásamt þeim öllum. 37 Allir tóku að gráta sáran, féllu um háls Páli og kysstu hann. 38 Mest varð þeim um þau orð hans að þeir mundu aldrei framar sjá hann. Síðan fylgdu þeir honum til skips.