Biblíulestur – 31. ágúst – Lúk 18.9–14
Jesús sagði líka dæmisögu þessa við nokkra þá er treystu því að sjálfir væru þeir réttlátir en fyrirlitu aðra: „Tveir menn fóru upp í helgidóminn að biðjast fyrir. Annar var farísei, hinn tollheimtumaður.
Faríseinn sté fram og baðst þannig fyrir: Guð, ég þakka þér að ég er ekki eins og aðrir menn, ræningjar, ranglátir, hórkarlar eða þá eins og þessi tollheimtumaður. Ég fasta tvisvar í viku og geld tíund af öllu sem ég eignast.
En tollheimtumaðurinn stóð langt frá og vildi ekki einu sinni hefja augu sín til himins heldur barði sér á brjóst og sagði: Guð, vertu mér syndugum líknsamur! Ég segi yður: Tollheimtumaðurinn fór heim til sín sáttur við Guð, hinn ekki, því að hver sem upp hefur sjálfan sig mun auðmýktur verða en sá sem lítillækkar sjálfan sig mun upp hafinn verða.“
Biblíulestur 27. september – Lúk 7.11-17
11 Skömmu síðar bar svo við að Jesús hélt til borgar sem heitir Nain og lærisveinar hans fóru með honum og mikill mannfjöldi. 12 Þegar hann nálgaðist borgarhliðið þá var [...]
Biblíulestur 26. september – Okv 24.11-22
11Bjargaðu þeim sem leiddir eru til lífláts, þeim sem eru dæmdir til aftöku. 12Ef þú segir: „Vér vissum það ekki,“ mun þá ekki sá sem gaumgæfir hjörtun verða þess var [...]
Biblíulestur 25. september – Post 3.12-26
12 Þegar Pétur sá það ávarpaði hann fólkið: „Ísraelsmenn, hví furðar ykkur á þessu eða hví starið þið á okkur eins og við hefðum af eigin mætti eða guðrækni komið [...]
Biblíulestur 24. september – Post 2.37-3.11
2. kafli 37 Er menn heyrðu þetta var sem stungið væri í hjörtu þeirra og þeir sögðu við Pétur og hina postulana: „Hvað eigum við að gera, bræður?“ 38 Pétur [...]
Biblíulestur 23. september – Post 2.22-36
22 Ísraelsmenn, heyrið þessi orð: Jesús frá Nasaret var maður sem kom til ykkar frá Guði. Guð sannaði ykkur það með því að láta hann gera kraftaverk, undur og tákn [...]
Biblíulestur 22. september – Post 2.1-21
Gjöf heilags anda 1 Þá er upp var runninn hvítasunnudagur voru allir saman komnir á einum stað. 2 Varð þá skyndilega gnýr af himni, eins og óveður væri að skella [...]