Í Íkóníum, Lýstru og Derbe

1 Í Íkóníum gengu þeir á sama hátt inn í samkundu Gyðinga og töluðu þannig að mikill fjöldi Gyðinga og Grikkja tók trú. 2 En Gyðingar, sem ekki vildu trúa, vöktu æsing með heiðingjum og illan hug gegn kristnum mönnum.[ 3 Páll og Barnabas dvöldust þar alllangan tíma. Þeir töluðu einarðlega í trausti til Drottins og hann staðfesti orð náðar sinnar með táknum og undrum sem hann gaf þeim að gera. 4 Skiptust nú borgarbúar í tvo flokka og voru sumir með Gyðingum, aðrir með postulunum. 5 Heiðingjar og Gyðingar ásamt forystumönnum sínum gerðu þá samblástur um að misþyrma þeim og grýta þá. 6 Postularnir komust að þessu og flýðu til borganna Lýstru og Derbe í Lýkaóníu og héraðsins þar umhverfis. 7 Þar héldu þeir áfram að flytja fagnaðarerindið.
8 Í Lýstru var maður nokkur máttvana í fótum, lami frá móðurlífi, og hafði aldrei getað gengið. 9 Maður þessi hlýddi á mál Páls en Páll horfði á hann og sá að hann hafði trú til þess að verða heill 10 og sagði hárri raustu: „Rís upp og stattu í fæturna!“ Maðurinn spratt upp og tók að ganga. 11 Múgurinn sá hvað Páll hafði gert og tók að hrópa á lýkaónsku: „Guðirnir eru í manna líki stignir niður til okkar.“ 12 Kölluðu þeir Barnabas Seif en Pál Hermes því að hann hafði orð fyrir þeim. 13 En prestur í hofi Seifs utan borgar kom með naut og kransa að borgarhliðunum og vildi færa fórnir ásamt fólkinu.
14 Þegar postularnir, Barnabas og Páll, heyrðu þetta rifu þeir klæði sín, stukku inn í mannþröngina og hrópuðu: 15 „Menn, hví gerið þið þetta? Við erum menn eins og þið, og flytjum ykkur þann fagnaðarboðskap að þið skulið hverfa frá þessum fánýtu goðum til lifanda Guðs sem skapaði himin, jörð og haf og allt sem í þeim er. 16 Hann hefur um liðnar aldir leyft að sérhver þjóð gengi sína vegu. 17 En þó hefur hann vitnað um sjálfan sig með velgjörðum sínum. Hann hefur gefið ykkur regn af himni og uppskerutíðir. Hann hefur veitt ykkur fæðu og fyllt hjörtu ykkar gleði.“ 18 Með þessum orðum fengu þeir með naumindum fólkið ofan af því að færa þeim fórnir.
19 Þá komu Gyðingar frá Antíokkíu og Íkóníum. Töldu þeir fólkið á sitt mál og menn grýttu Pál, drógu hann út úr borginni og hugðu hann dáinn. 20 En lærisveinarnir slógu hring um hann og reis hann þá upp og gekk inn í borgina. Daginn eftir fór hann þaðan með Barnabasi til Derbe.