Biblíulestur – 1. nóvember – Slm 107.17–32
Þeir sem sýktust vegna syndugs lífernis,
þjáðust vegna misgjörða sinna,
þeim bauð við allri fæðu
og þeir voru nærri dauðans dyrum.
Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni
og hann bjargaði þeim úr þrengingum þeirra,
sendi orð sitt og læknaði þá
og bjargaði þeim frá gröfinni.
Þeir skulu þakka Drottni miskunn hans
og dásemdarverk hans við mannanna börn,
færa honum þakkarfórnir
og segja frá verkum hans með fögnuði.
Þeir sem fóru um hafið á skipum
og ráku verslun á hinum miklu höfum
sáu verk Drottins
og dásemdarverk hans á djúpinu.
Því að hann bauð og þá kom stormviðri
sem hóf upp öldur hafsins.
Þeir hófust til himins, hnigu í djúpið,
og þeim féllst hugur í háskanum.
Þeir skjögruðu og reikuðu eins og drukkinn maður
og kunnátta þeirra kom að engu haldi.
Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni
og hann bjargaði þeim úr þrengingum þeirra.
Hann breytti storminum í blíðan blæ
og öldur hafsins lægði.
Þeir glöddust þegar þær kyrrðust
og hann leiddi þá til þeirrar hafnar sem þeir þráðu.
Þeir skulu þakka Drottni miskunn hans
og dásemdarverk hans við mannanna börn,
vegsama hann í söfnuði þjóðarinnar
og lofa hann í ráði öldunganna.
Biblíulestur 11. febrúar – Jes 40.1–8
Jerúsalem hughreyst 1Huggið, huggið lýð minn, segir Guð yðar. 2Hughreystið Jerúsalem og boðið henni að áþján hennar sé á enda, að sekt hennar sé goldin, að hún hafi fengið tvöfalt [...]
Biblíulestur 10. febrúar – 5Mós 18.14–22
14 Þessar þjóðir, sem þú hrekur burt, hafa hlýtt skýjaspámönnum og þeim sem lesa úr hlutkesti en Drottinn, Guð þinn, hefur ekki ætlað þér slíkt. 15 Spámann slíkan sem ég [...]
Biblíulestur 9. febrúar – Matt 11.11–19
11 Sannlega segi ég yður: Enginn er sá af konu fæddur sem meiri sé en Jóhannes skírari. En hinn minnsti í himnaríki er honum meiri. 12 Frá dögum Jóhannesar skírara [...]
Biblíulestur 8. febrúar – Mal 3.20–24
20 En sól réttlætisins mun rísa yfir ykkur, sem virðið nafn mitt, og vængir hennar færa lækningu. Þá munuð þið koma út, stökkva eins og kálfar sem hleypt er úr [...]
Biblíulestur 7. febrúar – Jóh 4.27–30, 39–43
27 Í sama bili komu lærisveinar hans og furðuðu sig á því að hann var að tala við konu. Þó sagði enginn: „Hvað viltu?“ eða: „Hvað ertu að tala við [...]
Biblíulestur 6. febrúar – Slm 109.1-15
1 Til söngstjórans. Davíðssálmur. Þú, Guð lofsöngs míns, ver eigi hljóður 2því að óguðlegan og svikulan munn opna þeir gegn mér, tala við mig með ljúgandi tungu. 3Með hatursorðum umkringja [...]