20 En sól réttlætisins mun rísa yfir ykkur, sem virðið nafn mitt, og vængir hennar færa lækningu. Þá munuð þið koma út, stökkva eins og kálfar sem hleypt er úr fjósi. 21 Þið munuð traðka óguðlega niður svo að þeir verða að ryki undir iljum ykkar daginn sem ég hefst handa, segir Drottinn hersveitanna.

Endurkoma Elía spámanns

22 Hafið lögmál Móse, þjóns míns, hugfast. Vegna alls Ísraels fékk ég honum það á Hóreb, með boðum þess og ákvæðum. 23 Sjá, ég sendi Elía spámann til ykkar áður en hinn mikli og ógurlegi dagur Drottins kemur. 24 Hann mun sætta feður við syni og syni við feður svo að ég verði ekki að helga landið banni þegar ég kem.