Biblíulestur – 2. nóvember – Matt 22.1–14
Þá tók Jesús enn að segja þeim dæmisögu: „Líkt er um himnaríki og konung einn sem gerði brúðkaup sonar síns. Hann sendi þjóna sína að kalla boðsgestina til brúðkaupsins en þeir vildu ekki koma. Aftur sendi hann aðra þjóna og mælti: Segið boðsgestunum: Veislu mína hef ég búið, uxum mínum og alifé er slátrað og allt er tilbúið, komið í brúðkaupið. En boðsgestirnir skeyttu því ekki. Einn fór á akur sinn, annar til kaupskapar síns en hinir tóku þjóna hans, misþyrmdu þeim og drápu.
Konungur reiddist, sendi út her sinn og lét tortíma morðingjum þessum og brenna borg þeirra. Síðan segir hann við þjóna sína: Brúðkaupsveislan er tilbúin en boðsgestirnir voru ekki verðugir. Farið því út á stræti og torg og bjóðið í brúðkaupið hverjum þeim sem þið finnið. Þjónarnir fóru út á vegina og söfnuðu öllum, sem þeir fundu, vondum og góðum, svo að brúðkaupssalurinn varð alskipaður gestum.
Konungur gekk þá inn að sjá gestina og leit þar mann sem var ekki búinn brúðkaupsklæðum. Hann segir við hann: Vinur, hvernig ert þú hingað kominn og ert ekki í brúðkaupsklæðum? Maðurinn gat engu svarað. Konungur sagði þá við þjóna sína: Bindið hann á höndum og fótum og varpið honum í ystu myrkur. Þar verður grátur og gnístran tanna. Því að margir eru kallaðir en fáir útvaldir.“
Biblíulestur Öskudagur – Matt 6.16-21
Þegar þú fastar 16 Þegar þér fastið þá verið ekki döpur í bragði eins og hræsnarar. Þeir afmynda andlit sín svo að engum dyljist að þeir fasta. Sannlega segi ég [...]
Biblíulestur 16. febrúar – Jóh 1.29–34
29 Daginn eftir sér Jóhannes Jesú koma til sín og segir: „Sjá, Guðs lamb sem ber synd heimsins. 30 Þar er sá er ég sagði um: Eftir mig kemur maður [...]
Biblíulestur 15. febrúar – Lúk 1.67–80
Lofsöngur Sakaría 67 En Sakaría faðir hans fylltist heilögum anda og mælti af spámannlegri andagift: 68 Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið [...]
Biblíulestur 14. febrúar – Jóh 12.23–36
23 Jesús svaraði þeim: „Stundin er komin að dýrð Mannssonarins verði opinber. 24 Sannlega, sannlega segi ég yður: Ef hveitikornið fellur ekki í jörðina og deyr verður það áfram eitt. [...]
Biblíulestur 13. febrúar – Slm 109.16-20
16sakir þess að hann gleymdi að sýna gæsku en ofsótti hinn hrjáða og snauða og hinn ráðþrota til þess að drepa hann. 17Hann hafði ánægju af bölbænum, þær bitni á [...]
Biblíulestur 12. febrúar – Lúk 1.57–66
Fæðing Jóhannesar 57 Nú kom sá tími að Elísabet skyldi verða léttari og ól hún son. 58 Og nágrannar hennar og ættmenn heyrðu hversu mikla miskunn Drottinn hafði auðsýnt henni [...]