Biblíulestur – 2. nóvember – Matt 22.1–14
Þá tók Jesús enn að segja þeim dæmisögu: „Líkt er um himnaríki og konung einn sem gerði brúðkaup sonar síns. Hann sendi þjóna sína að kalla boðsgestina til brúðkaupsins en þeir vildu ekki koma. Aftur sendi hann aðra þjóna og mælti: Segið boðsgestunum: Veislu mína hef ég búið, uxum mínum og alifé er slátrað og allt er tilbúið, komið í brúðkaupið. En boðsgestirnir skeyttu því ekki. Einn fór á akur sinn, annar til kaupskapar síns en hinir tóku þjóna hans, misþyrmdu þeim og drápu.
Konungur reiddist, sendi út her sinn og lét tortíma morðingjum þessum og brenna borg þeirra. Síðan segir hann við þjóna sína: Brúðkaupsveislan er tilbúin en boðsgestirnir voru ekki verðugir. Farið því út á stræti og torg og bjóðið í brúðkaupið hverjum þeim sem þið finnið. Þjónarnir fóru út á vegina og söfnuðu öllum, sem þeir fundu, vondum og góðum, svo að brúðkaupssalurinn varð alskipaður gestum.
Konungur gekk þá inn að sjá gestina og leit þar mann sem var ekki búinn brúðkaupsklæðum. Hann segir við hann: Vinur, hvernig ert þú hingað kominn og ert ekki í brúðkaupsklæðum? Maðurinn gat engu svarað. Konungur sagði þá við þjóna sína: Bindið hann á höndum og fótum og varpið honum í ystu myrkur. Þar verður grátur og gnístran tanna. Því að margir eru kallaðir en fáir útvaldir.“
Biblíulestur 22. febrúar – 1Pét 2.1–10
Hinn lifandi steinn 1 Segið því skilið við alla vonsku og alla pretti, hræsni, öfund og allt baktal. 2 Sækist eins og nýfædd börn eftir hinni andlegu, ómenguðu mjólk til [...]
Biblíulestur 21. febrúar – Lúk 10.17–20
Þeir sjötíu og tveir koma aftur 17 Nú komu þeir sjötíu og tveir[ aftur með fögnuði og sögðu: „Drottinn, jafnvel illir andar hlýða okkur þegar við tölum í þínu nafni.“ [...]
Biblíulestur 20. febrúar – Slm 109.21-31
21En þú, Drottinn, Guð minn, breyt vel við mig sakir nafns þíns, frelsa mig sakir gæsku þinnar og miskunnar 22 því að ég er hrjáður og snauður, hjartað berst í [...]
Biblíulestur 19. febrúar – Jes 8.12–18
12Kallið ekki allt samsæri sem þetta fólk kallar samsæri. Óttist ekki það sem það óttast, skelfist ekki. 13Drottinn allsherjar sé yður heilagur, hann skuluð þér óttast, hann skuluð þér skelfast. [...]
Biblíulestur 18. febrúar – 2Mós 13.1–2, 11–16
1 Drottinn sagði við Móse: 2 „Helga mér alla frumburði. Hvað eina sem fyrst opnar móðurlíf á meðal Ísraelsmanna er mitt, bæði hjá mönnum og skepnum.“ ... 11 Þegar Drottinn [...]
Biblíulestur Öskudagur – Matt 6.16-21
Þegar þú fastar 16 Þegar þér fastið þá verið ekki döpur í bragði eins og hræsnarar. Þeir afmynda andlit sín svo að engum dyljist að þeir fasta. Sannlega segi ég [...]