Biblíulestur – 3. nóvember – 2Þess 1.1–12
Páll, Silvanus og Tímóteus heilsa söfnuði Þessaloníkumanna í Guði, föður vorum, og Drottni Jesú Kristi.
Náð sé með yður og friður frá Guði föður og Drottni Jesú Kristi.
Skylt er okkur, bræður og systur, og maklegt að þakka Guði ætíð fyrir ykkur því að trú ykkar eykst stórum og kærleiki ykkar allra hvers til annars fer vaxandi. Því get ég miklast af ykkur í söfnuðum Guðs fyrir þolgæði ykkar og trú í öllum ofsóknum ykkar og þrengingum þeim er þið þolið.
Þær birta réttlátan dóm Guðs og að hann muni meta ykkur makleg Guðs ríkis sem þið nú líðið illt fyrir. Guð er réttlátur, hann endurgeldur þeim þrengingu sem að ykkur þrengja en veitir ykkur, sem þrengingu líðið, hvíld ásamt mér þegar Drottinn Jesús opinberast af himni með máttugum englum sínum. Hann kemur í logandi eldi og hegnir þeim sem þekkja ekki Guð og þeim sem hlýða ekki fagnaðarerindinu um Drottin vorn Jesú. Þau munu sæta hegningu, eilífri glötun, fjarri augliti Drottins og fjarri dýrð hans og mætti. Þetta verður á þeim degi er Drottinn kemur til að opinbera sínum heilögu dýrð sína og vegsamast af öllum sem trú hafa tekið. Og þið eruð meðal þeirra sem trúað hafa þeim vitnisburði sem ég flutti ykkur.
Þess vegna bið ég ávallt fyrir ykkur að Guð minn álíti ykkur makleg þess lífs sem hann kallaði ykkur til og veiti ykkur kraft til að framkvæma allt hið góða sem þið viljið og trú ykkar beinir ykkur til. Þannig verður nafn Drottins vors Jesú dýrlegt í ykkur og þið í honum fyrir náð Guðs vors og Drottins Jesú Krists.
Biblíulestur 28. febrúar – Mrk 9.14–29
Hjálpa þú vantrú minni 14 Þegar þeir komu til lærisveinanna sáu þeir mannfjölda mikinn kringum þá og fræðimenn að þrátta við þá. 15 En um leið og fólkið sá hann [...]
Biblíulestur 27. febrúar – Okv 25.14-28
14Ský og vindur en engin rigning, svo er sá sem hrósar sér af örlæti en gefur þó ekkert. 15Með þolinmæði má telja höfðingja hughvarf, mjúk tunga mylur bein. 16Finnir þú [...]
Biblíulestur 26. febrúar – Mík 5.1–8
Friðarhöfðinginn frá Betlehem 1En þú, Betlehem í Efrata, ein minnsta ættborgin í Júda, frá þér læt ég þann koma er drottna skal í Ísrael. Ævafornt er ætterni hans, frá ómunatíð. [...]
Biblíulestur 25. febrúar – Jes 66.18–24
Allar þjóðir tilbiðja Guð Ísraels 18 Ég mun sjálfur koma til að stefna saman öllum þjóðum og tungum og þær munu koma og sjá dýrð mína. 19 Ég mun setja [...]
Biblíulestur 24. febrúar – Jes 2.1–5
Ævarandi friður 1 Þetta er það sem Jesaja Amotssyni vitraðist um Júda og Jerúsalem. Friður 2Það skal verða á komandi dögum að fjallið, sem hús Drottins stendur á, bifast ekki, [...]
Biblíulestur 23. febrúar – 4Mós 24.10–19
10 Reiði Balaks blossaði nú upp gegn Bíleam, hann sló saman lófum og sagði við hann: „Ég sótti þig til að bölva fjandmönnum mínum en þú hefur blessað þá þrisvar. [...]