Biblíulestur – 4. nóvember – 2Þess 2.1–12
En að því er varðar komu Drottins vors Jesú Krists og að við söfnumst til hans bið ég ykkur, bræður og systur, að vera ekki fljót til að komast í uppnám eða verða hrædd, hvorki þótt vísað sé til andavitrunar né einhvers sem ég á að hafa kennt eða skrifað um að dagur Drottins sé þegar fyrir höndum. Látið engan villa ykkur á nokkurn hátt. Ekki kemur dagurinn nema fráhvarfið komi fyrst og maður lögleysisins komi fram, sonur glötunarinnar, sem setur sig á móti Guði og hreykir sér yfir allt sem heitir Guð eða helgur dómur, sest í musteri Guðs og gerir sjálfan sig að Guði.
Minnist þið ekki þess að ég sagði ykkur þetta meðan ég enn þá var hjá ykkur? Þið vitið hvað aftrar honum nú. Hann á að bíða síns tíma. Því að leyndardómur lögleysisins er þegar farinn að starfa en fyrst verður að ryðja þeim burt sem stendur í vegi. Þá mun lögleysinginn opinberast en Drottinn Jesús mun koma og birtast, tortíma honum með anda munns síns og gera hann að engu. Þegar lögleysinginn kemur fram er Satan að verki með alls kyns furðuverkum, lygatáknum, undrum og alls konar ranglætisvélum sem blekkja þau sem eru á glötunarleið. Þau glatast af því að þau vildu ekki þiggja kærleikann til sannleikans svo að þau mættu verða hólpin. Þess vegna sendir Guð þeim megna villu til þess að þau trúi lyginni. Þannig verða þau öll dæmd sem trúðu ekki sannleikanum en höfðu velþóknun á ranglætinu.
Biblíulestur 6. mars – Slm 110.1-7
1 Davíðssálmur. Svo segir Drottinn við herra minn: „Set þig mér til hægri handar, þá mun ég leggja óvini þína sem skör fóta þinna.“ 2Drottinn réttir út þinn volduga sprota [...]
Biblíulestur 5. mars – Heb 10.1–10
Hin eina fórn 1 Lögmálið geymir aðeins skugga hins góða sem er í vændum, ekki skýra mynd þess. Þær sömu fórnir sem ár eftir ár eru bornar fram geta því [...]
Biblíulestur 4. mars – Fil 2.5–11
5 Verið með sama hugarfari sem Kristur Jesús var. 6Hann var í Guðs mynd. En hann fór ekki með það sem feng sinn að vera Guði líkur. 7Hann svipti sig [...]
Biblíulestur 3. mars – 2Kor 5.1–10
1 Við vitum að þótt jarðnesk tjaldbúð okkar verði rifin niður þá höfum við hús frá Guði, eilíft hús á himnum sem eigi er með höndum gert. 2 Á meðan [...]
Biblíulestur 2. mars – 5Mós 16.1–7
Páskahátíðin 1 Gæt þess að halda Drottni, Guði þínum, páska í abíbmánuði. Það var nótt eina í abíbmánuði að Drottinn, Guð þinn, leiddi þig út úr Egyptalandi. 2 Þú skalt [...]
Biblíulestur 1. mars – Róm 10.12–21
12 Í þessu er enginn munur á Gyðingum og Grikkjum. Hinn sami er Drottinn allra, fullríkur fyrir alla sem ákalla hann 13 því að „hver sem ákallar nafn Drottins verður [...]