Biblíulestur – 18. september – 2Kor 6.1–18
Sem samverkamaður Krists hvet ég ykkur einnig að þið látið ekki náð Guðs, sem þið hafið þegið, verða til einskis. Hann segir:
Á hagkvæmri tíð bænheyrði ég þig,
og á hjálpræðisdegi hjálpaði ég þér.
Nú er hagkvæm tíð, nú er hjálpræðisdagur. Í engu vil ég gefa neinum tilefni til ásteytingar, ég vil ekki að þjónusta mín sæti lasti. Í öllu læt ég sjást að ég er þjónn Guðs: Með miklu þolgæði í þrengingum, nauðum og andstreymi, þegar ég hef mátt þola barsmíðar, verið í fangelsi, orðið fyrir aðsúg, í erfiði mínu, andvökum og sulti, með grandvarleik, þekkingu, þolinmæði og mildi, með heilögum anda, með falslausum kærleika, með orði sannleikans, með krafti Guðs, með vopnum réttlætisins til sóknar og varnar, í heiðri og vanheiðri, lasti og lofi. Þótt talinn sé villumaður segi ég sannleikann, sagður óþekktur en er alþekktur, kominn í dauðann og samt lifi ég, tyftaður og þó ekki deyddur, hryggur en þó ávallt glaður, fátækur en auðga þó marga, öreigi en á þó allt.
Ég tala frjálslega við ykkur, Korintumenn. Rúmt er um ykkur í hjarta mínu. Ekki er þröngt um ykkur hjá mér en í hjörtum ykkar er þröngt. En svo að sama komi á móti – ég tala eins og við börn mín – þá látið þið líka verða rúmgott hjá ykkur.
Dragið ekki ok með vantrúuðum. Hvað er sameiginlegt með réttlæti og ranglæti eða með ljósi og myrkri? Hvað eiga Kristur og Belíar sameiginlegt? Hvað eiga trúaðir sameiginlegt með vantrúuðum? Hvernig getur musteri Guðs þolað skurðgoð? Við erum musteri lifanda Guðs eins og Guð hefur sagt:
Ég mun búa meðal þeirra og dveljast hjá þeim
og ég mun vera Guð þeirra
og þeir munu vera lýður minn.
Þess vegna segir Drottinn:
Farið burt frá þeim og skiljið ykkur frá þeim.
Snertið ekki neitt óhreint og ég mun taka ykkur að mér
og ég mun vera ykkur faðir
og þið munuð vera mér synir og dætur,
segir Drottinn alvaldur.
Biblíulestur 23. janúar – Slm 108.1-14
1 Ljóð. Davíðssálmur. 2Hjarta mitt er stöðugt, ó Guð, ég vil syngja og leika. Vakna þú, sál mín, 3vakna þú, harpa og gígja, ég ætla að vekja morgunroðann. 4Ég lofa [...]
Biblíulestur 22. janúar – Post 27.1-26
Páll siglir til Rómar 1 Þegar ákveðið var að við skyldum sigla til Ítalíu voru Páll og nokkrir bandingjar aðrir seldir í hendur hundraðshöfðingja, er Júlíus hét, úr hersveit keisarans. [...]
Biblíulestur 21. janúar – Post 26.19-32
19 Fyrir því gerðist ég, Agrippa konungur, eigi óhlýðinn hinni himnesku vitrun 20 heldur boðaði ég fyrst þeim í Damaskus og í Jerúsalem, síðan um alla Júdeubyggð og heiðingjunum að [...]
Biblíulestur 20. janúar – Post 26.1-18
Varnarræða Páls fyrir Agrippu 1 En Agrippa sagði við Pál: „Nú er þér leyft að tala þínu máli.“ Páll rétti þá út höndina og bar fram vörn sína: 2 „Lánsamur [...]
Biblíulestur 19. janúar – Post 25.13-27
Páll leiddur fyrir Agrippu og Berníke 13 Nokkrum dögum síðar komu Agrippa konungur og Berníke til Sesareu að bjóða Festus velkominn. 14 Þegar þau höfðu dvalist þar nokkra daga lagði [...]
Biblíulestur 18. janúar – Post 24.22-25.12
24. kafli 22 Felix, sem var vel kunnugt um veginn, frestaði nú málinu og mælti: „Þegar Lýsías hersveitarforingi kemur ofan hingað skal ég skera úr máli ykkar.“ 23 Hann bauð [...]