Biblíulestur – 31. október – Jóh 8.31–36
Þá sagði Jesús við Gyðingana, sem tekið höfðu trú á hann: „Ef þér farið eftir því sem ég segi eruð þér sannir lærisveinar mínir og munuð þekkja sannleikann, og sannleikurinn mun gera yður frjálsa.“
Fólkið svaraði honum: „Við erum niðjar Abrahams og höfum aldrei verið nokkurs manns þrælar. Hvernig getur þú þá sagt: Þið munuð verða frjálsir?“
Jesús svaraði þeim: „Sannlega, sannlega segi ég yður: Hver sem drýgir synd er þræll syndarinnar. En þrællinn dvelst ekki um aldur á heimilinu, sonurinn dvelst þar um aldur og ævi. Ef sonurinn frelsar yður munuð þér sannarlega verða frjálsir.
Biblíulestur 5. febrúar – Mal 2.17–3.4
2. kafli Dagur dómsins 17 Þið þreytið Drottin með orðum ykkar. Þið spyrjið: „Með hverju þreytum við hann?“ Með því að segja: „Sérhver illvirki er góður í augum Drottins, honum [...]
Biblíulestur 4. febrúar – Jes 42.1–9
Þjónn Drottins 1Sjá þjón minn sem ég styð, minn útvalda sem ég hef velþóknun á. Ég legg anda minn yfir hann, hann mun færa þjóðunum réttlæti. 2Hann kallar ekki og [...]
Biblíulestur 3. febrúar – Opb 21.1–8
Nýr himinn, ný jörð 1 Og ég sá nýjan himin og nýja jörð því að hinn fyrri himinn og hin fyrri jörð voru horfin og hafið var ekki framar til. [...]
Biblíulestur 2. febrúar – 1Pét 1.3–9
Lifandi von 3 Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists sem eftir mikilli miskunn sinni hefur endurfætt oss til lifandi vonar fyrir upprisu Jesú Krists frá dauðum 4 [...]
Biblíulestur 1. febrúar – 1Þess 4.13–5.11
4. kafli Endurkoma Drottins 13 Ekki vil ég, systkin,[ láta ykkur vera ókunnugt um þau sem sofnuð eru, til þess að þið séuð ekki hrygg eins og hin sem ekki [...]
Biblíulestur 31. janúar – Matt 19.27-30
27 Þá sagði Pétur við hann: „Við yfirgáfum allt og fylgdum þér. Hvað munum við hljóta?“ 28 Jesús sagði við þá: „Sannlega segi ég ykkur: Þegar Guð hefur endurnýjað allt [...]