27 Í sama bili komu lærisveinar hans og furðuðu sig á því að hann var að tala við konu. Þó sagði enginn: „Hvað viltu?“ eða: „Hvað ertu að tala við hana?“
28 Nú skildi konan eftir skjólu sína, fór inn í borgina og sagði við menn: 29 „Komið og sjáið mann er sagði mér allt sem ég hef gert. Skyldi hann vera Kristur?“ 30 Þeir fóru úr borginni og komu til hans. …

39 Margir Samverjar úr þessari borg trúðu á hann vegna orða konunnar sem vitnaði um það að hann hefði sagt henni allt sem hún hafði gert. 40 Þegar því Samverjarnir komu til hans báðu þeir hann að staldra við hjá sér. Var hann þar um kyrrt tvo daga.
41 Og miklu fleiri tóku trú þegar þeir heyrðu hann sjálfan. 42 Þeir sögðu við konuna: „Það er ekki lengur sakir orða þinna að við trúum því að við höfum sjálfir heyrt hann og vitum að hann er sannarlega frelsari heimsins.“

43 Eftir þessa tvo daga fór Jesús þaðan til Galíleu.