Biblíulestur – 25. nóvember – 5Mós 32.15–29
Jakob át fylli sína,
Jesjúrún varð feitur og sparkaði,
þú fitnaðir, varðst digur og sællegur.
Hann hafnaði Guði sem mótaði hann,
forsmáði klettinn sem bjargaði honum.
Þeir vöktu afbrýði Drottins með framandi guðum,
ögruðu honum með viðurstyggilegum skurðgoðum.
Þeir færðu fórnir illum öndum sem engir guðir eru,
guðum sem þeir þekktu ekki áður,
nýjum guðum, nýlega fram komnum,
sem vöktu feðrum yðar engan ugg.
Þú afræktir bjargið sem gat þig,
gleymdir Guði sem ól þig.
Drottinn sá það og hafnaði þeim
því að synir hans og dætur vöktu heift hans.
Hann sagði: „Ég mun byrgja auglit mitt fyrir þeim,
ætla að sjá hvað um þau verður,
því að þau eru þverúðug kynslóð,
börn sem engin tryggð finnst í.
Þau vöktu afbrýði mína með því sem ekki er guð,
vöktu heift mína með fánýtum skurðgoðum.
Nú vek ég afbrýði þeirra með því sem ekki er þjóð,
ögra þeim með heimskum lýð.
Úr nösum mér standa eldtungur
sem brenna niður í djúp heljar,
eyða jörð og jarðargróða,
leggja eld í grundvöll fjalla.
Ég mun hlaða að þeim hvers kyns böli,
eyða á þá örvum mínum.
Tærandi hungri, eyðandi plágu,
drepsótt og vígtenntu dýri
sleppi ég lausu á þá
og eitri þeirra sem í duftinu skríða.
Á strætum úti sviptir sverðið þá börnum,
í húsum inni mun skelfingin deyða
æskumann og yngismey,
brjóstmylking og öldung.
Ég hefði getað sagt: Þeim mun ég eyða,
afmá minningu þeirra meðal manna,
ef ég óttaðist ekki að óvinir Ísraels blekktu með því að segja:
Hönd okkar er sigursæl,
ekkert af þessu gerði Drottinn.“
En þeir eru ráðþrota þjóð,
skilning hafa þeir engan.
Væru þeir vitrir skildu þeir þetta,
væri ljóst hvað þeir eiga í vændum.
Biblíulestur 15. júlí – Post 4.13–22
13 Þegar ráðsherrarnir sáu djörfung Péturs og Jóhannesar og skildu að þeir voru ekki lærðir, heldur óbrotnir alþýðumenn, undruðust þeir. Þeir könnuðust og við að þeir höfðu verið með Jesú. [...]
Biblíulestur 14. júlí – Post 4.1–12
Pétur og Jóhannes fyrir ráðinu 1 Meðan þeir Pétur og Jóhannes voru að tala til fólksins komu að þeim prestarnir, varðforingi helgidómsins og saddúkearnir. 2 Þeir voru æfir yfir því [...]
Biblíulestur 13. júlí – Esk 36.1-21
Ísraels fjöll munu blómgast 1 Þú, mannssonur, spá fyrir fjöllum Ísraels og seg: Ísraelsfjöll. Heyrið orð Drottins. 2 Svo segir Drottinn Guð: Fjandmennirnir hafa sagt um ykkur: Ævarandi auðn. Hún er orðin okkar [...]
Biblíulestur 12. júlí – Jes 44.1–5
Blessun yfir Ísrael 1Hlýð þú á, Jakob, þjónn minn, og Ísrael sem ég hef útvalið. 2Svo segir Drottinn sem skapaði þig, mótaði þig í móðurlífi og hjálpar þér: Óttast ekki, [...]
Biblíulestur 11. júlí – Post 8.26-39
26 En engill Drottins mælti til Filippusar: „Statt upp og gakk suður[ á veginn sem liggur ofan frá Jerúsalem til Gasa.“ Þar er óbyggð. 27 Hann hlýddi og fór. Þá [...]
Biblíulestur 10. júlí – Slm 119.49-64
7 49Minnstu þess orðs við þjón þinn sem þú gafst mér að vona á, 50það er huggun mín í eymd minni að orð þitt lætur mig lífi halda. 51Þeir hrokafullu [...]