Ísraels fjöll munu blómgast

1 Þú, mannssonur, spá fyrir fjöllum Ísraels og seg: Ísraelsfjöll. Heyrið orð Drottins. 2 Svo segir Drottinn Guð: Fjandmennirnir hafa sagt um ykkur: Ævarandi auðn. Hún er orðin okkar eign. 3 Flyttu því spámannlegan boðskap og segðu: Svo segir Drottinn Guð: Ykkur hefur verið eytt og að ykkur veist úr öllum áttum, svo að þið eruð orðin eign annarra þjóða. Fólk hefur haft ykkur að háði og spotti. 4 Ísraelsfjöll! Heyrið því orð Drottins Guðs: Svo segir Drottinn Guð við fjöllin og hæðirnar, gilin og dalina, auðu rústirnar og yfirgefnu borgirnar sem urðu þjóðunum umhverfis að herfangi og spotti. 5 Þess vegna segir Drottinn Guð svo: Af brennandi ákafa mun ég tala gegn hinum þjóðunum og öllum Edóm. Þær hafa slegið eign sinni á land mitt og rekið íbúana burt, illkvittnar og fullar fyrirlitningar, svo að þær geti rænt þá. 6 Spáðu um land Ísraels og segðu við fjöllin og hæðirnar, gilin og dalina: Svo segir Drottinn Guð: Ég hef talað af ástríðufullri heift af því að þið urðuð að bera niðurlægingu annarra þjóða. 7 Þess vegna segir Drottinn Guð svo: Ég hef svarið þess eið með uppréttri hendi að þjóðirnar umhverfis ykkur verði að bera sína niðurlægingu. 8 En þið, Ísraelsfjöll, munuð skjóta greinum og bera ávexti handa þjóð minni, Ísrael, því að hún kemur brátt. 9 Nú kem ég til ykkar og sný mér að ykkur og þá verðið þið bæði ræktuð og í ykkur sáð. 10 Ég mun fjölga íbúum ykkar, öllum Ísrael. Aftur verður búið í borgunum og rústirnar verða endurreistar. 11 Ég mun fjölga mönnum og skepnum á ykkur sem munu verða frjósamar og margfaldast. Og ég mun láta menn setjast að á ykkur eins og áður og láta ykkur farnast betur en á fyrri tíð. Þá munuð þið skilja að ég er Drottinn. 12 Ég mun láta þjóð mína, Ísrael, ganga á ykkur. Þeir munu taka ykkur til eignar og þið verðið erfðaland þeirra og munuð aldrei gera þá barnlausa framar.
13 Svo segir Drottinn Guð: Um þig er sagt: Þú ert mannæta og gerðir þjóð þína barnlausa. 14 Þess vegna segi ég: Þú skalt ekki eta menn framar og þú skalt ekki framar svipta þjóð þína börnum sínum, segir Drottinn Guð. 15 Ég mun hvorki láta þig heyra smánaryrði frá öðrum ríkjum framar né háð annarra þjóða. Þú skalt ekki framar svipta þjóð þína börnum sínum, segir Drottinn Guð.

Endurreisn Ísraels

16 Orð Drottins kom til mín: 17 Mannssonur, þegar Ísraelsmenn bjuggu í landi sínu saurguðu þeir það með breytni sinni og verkum. Breytni þeirra var í mínum augum eins og óhreinleiki konu sem hefur á klæðum. 18 Þá jós ég heift minni yfir þá vegna blóðsins sem þeir höfðu úthellt í landinu og af því að þeir höfðu saurgað það með skurðgoðum sínum. 19 Ég tvístraði þeim meðal annarra þjóða, þeim var dreift um löndin. Ég dæmdi þá eftir breytni þeirra og verkum. 20 Og hvar sem þeir komu til þjóðanna vanhelguðu þeir mitt heilaga nafn. Því að um þá var sagt: Þessir menn eru þjóð Drottins en samt urðu þeir að yfirgefa land hans. 21 Ég tók þetta nærri mér vegna míns heilaga nafns sem Ísraelsmenn höfðu vanhelgað meðal þjóðanna sem þeir komu til.