Biblíulestur – 24. nóvember – 5Mós 31.30–32.14
Móse flutti þá öllum söfnuði Ísraels þetta ljóð allt frá upphafi til enda.
Hlustið, himnar, og ég mun mæla,
jörðin hlýði á mál mitt.
Kenning mín streymi sem regn,
ræða mín drjúpi sem dögg,
eins og gróðrarskúr á grængresi
og dögg á nýgræðing.
Ég vil kunngjöra nafn Drottins,
lofið mátt Guðs vors.
Hann er bjargið, verk hans fullkomin
og allir hans vegir réttlátir.
Hann er trúfastur Guð og svikalaus,
réttlátur og hreinlyndur.
Svikul kynslóð og spillt brást honum;
sér til svívirðu eru þeir ekki synir hans framar.
Þakkar þú Drottni þannig,
heimska og fávísa þjóð?
Er hann ekki faðir þinn og skapari,
sá er gerði þig og fann þér samastað?
Minnstu fyrri tíða,
hygg að árum genginna kynslóða.
Spyrðu föður þinn, hann fræðir þig,
öldungana, þeir segja þér frá.
Þegar Hinn hæsti fékk guðunum þjóðirnar,
er hann greindi mennina að,
þá setti hann þjóðunum landamerki
eftir fjölda guðanna.
En lýður Drottins kom í hlut hans,
Jakob varð erfðahlutur hans.
Hann fann hann í auðninni,
í ýlfrandi óbyggðum,
sveipaði hann, hlúði að honum,
gætti hans sem sjáaldurs auga síns,
eins og örn sem gætir hreiðurs síns
og svífur yfir ungum sínum,
eins þandi hann vængi sína, greip einn þeirra upp
og bar burt á vængjum sér.
Drottinn einn leiddi Jakob,
enginn framandi guð er með honum.
Hann lét hann fara um hæðir landsins
og nærast af ávexti jarðar.
Hann gaf honum hunang úr klettum að sjúga
og ólífuolíu úr tinnusteinum.
Hann ól hann á rjóma og mjólk úr kúm og ám,
feiti lamba, sauða, hafra og Basannauta,
og besta hveiti,
þrúgnablóð drakkstu sem freyðandi vín.
Biblíulestur 9. júlí – Jak 5.13–20
13 Líði nokkrum illa ykkar á meðal, þá biðji hann. Liggi vel á einhverjum, þá syngi hann lofsöng. 14 Sé einhver sjúkur ykkar á meðal, þá kalli hann til sín [...]
Biblíulestur 8. júlí – Lúk 11.1–13
Kenndu okkur að biðja 1 Svo bar við, er Jesús var á stað einum að biðjast fyrir, að einn lærisveina hans sagði við hann þá er hann lauk bæn sinni: [...]
Biblíulestur 7. júlí – Mrk 11.15–26
Hús mitt bænahús 15 Þeir komu til Jerúsalem og Jesús gekk í helgidóminn og tók að reka út þá sem voru að selja þar og kaupa og hratt um borðum [...]
Biblíulestur 6. júlí – 1Kon 8.22–30
Vígslubæn konungs 22 Þessu næst gekk Salómon fyrir altari Drottins andspænis öllum söfnuði Ísraels, lauk upp lófum til himins 23 og bað: „Drottinn, Guð Ísraels, enginn guð er sem þú, [...]
Biblíulestur 5. júlí – 1. Jóh 5.6-12
6 Hann er sá sem kom með vatni og blóði, Jesús Kristur. Ekki með vatninu eingöngu heldur með vatninu og með blóðinu. Og andinn er sá sem vitnar því að [...]
Biblíulestur 4. júlí – Lúk 8.1–3
Þær hjálpuðu þeim 1 Eftir þetta fór Jesús um, borg úr borg og þorp úr þorpi, prédikaði og flutti fagnaðarerindið um Guðs ríki. Með honum voru þeir tólf 2 og [...]