Biblíulestur – 29. nóvember – Okv 26.17–28
Sá sem blandar sér í annarra deilu
er eins og sá sem grípur í eyrun á hundi sem fram hjá hleypur.
Eins og óður maður sem þeytir eldibröndum og örvum
er sá sem svíkur náunga sinn og segir síðan:
„Ég var bara að gera að gamni mínu.“
Þegar eldsneytið þrýtur slokknar eldurinn
og þegar enginn er rógberinn stöðvast deilurnar.
Eins og kol þarf til glóða og við til elds,
eins þarf þrætugjarnan mann til að kveikja deilur.
Orð rógberans eru eins og sælgæti,
þau læsa sig inn í innstu fylgsni hjartans.
Sem sorasilfur utan af leirbroti,
svo eru eldheitir kossar og illt hjarta.
Með vörum sínum gerir hatursmaðurinn sér upp vinalæti
en í hjarta sínu hyggur hann á svik.
Þó að hann mæli fagurt, þá trúðu honum ekki
því að sjö andstyggðir búa í hjarta hans.
Þótt hatrið hylji sig hræsni,
þá verður illska þess opinber í söfnuðinum.
Sá sem grefur gröf fellur í hana
og steinninn fellur aftur í fang þeim er veltir honum.
Lygin tunga hatar þá sem hún hefur unnið mein
og smjaðuryrði leiða til glötunar.
Biblíulestur 8. ágúst – Jóh 4.19–26
19 Konan segir við hann: „Drottinn, nú sé ég að þú ert spámaður. 20 Feður okkar hafa tilbeðið Guð á þessu fjalli en þið segið að í Jerúsalem sé sá [...]
Biblíulestur 7. ágúst – Slm 119.97-112
13 97Hve mjög elska ég lögmál þitt, allan daginn íhuga ég það. 98Boð þín hafa gert mig vitrari en óvini mína því að þau hef ég ætíð hjá mér. 99Ég [...]
Biblíulestur 6. ágúst – Job 29.7–17
7Þegar ég gekk um hlið mitt til borgarinnar og settist í sæti mitt á torginu 8drógu æskumenn sig í hlé þegar þeir sáu mig og öldungar risu á fætur og [...]
Biblíulestur 5. ágúst – 5Mós 24.14–22
14 Þú skalt ekki halda launum fyrir fátækum og þurfandi daglaunamanni, hvort heldur hann er einn af bræðrum þínum eða aðkomumönnum í landi þínu, í einhverri af borgum þínum. 15 [...]
Biblíulestur 4. ágúst – 5Mós 15.1–11
Sjöunda árið: Uppgjöf skulda 1 Sjöunda hvert ár skaltu fella niður skuldir. 2 Eftir þessum reglum skaltu fella niður skuldir: Sérhver lánardrottinn skal falla frá kröfum vegna láns sem hann [...]
Biblíulestur 3. ágúst – Ef 4.1–16
Vaxtartakmark Krists fyllingar 1 Ég, bandinginn vegna Drottins, áminni ykkur þess vegna um að hegða ykkur svo sem samboðið er þeirri köllun sem þið hafið hlotið. 2 Verið í hvívetna [...]