Biblíulestur – Fyrsti sunnudagur í aðventu 30. nóvember – Lúk 4.16–21
Jesús kom til Nasaret, þar sem hann var alinn upp, og fór að vanda sínum á hvíldardegi í samkunduna og stóð upp til að lesa. Var honum fengin bók Jesaja spámanns. Hann lauk upp bókinni og fann staðinn þar sem ritað er:
Andi Drottins er yfir mér
af því að hann hefur smurt mig.
Hann hefur sent mig til að flytja fátækum gleðilegan boðskap,
boða bandingjum lausn
og blindum sýn,
láta þjáða lausa
og kunngjöra náðarár Drottins.
Síðan lukti Jesús aftur bókinni, fékk hana þjóninum og settist niður en augu allra í samkundunni hvíldu á honum. Hann tók þá að tala til þeirra: „Í dag hefur ræst þessi ritning í áheyrn yðar.“
Biblíulestur 14. ágúst – Slm 119.113-128
15 113Ég hata tvílráða menn en lögmál þitt elska ég. 114Þú ert skjól mitt og skjöldur, ég vona á orð þitt. 115Víkið frá mér, illgjörðamenn, að ég megi halda boð [...]
Biblíulestur 13. ágúst – Post 13.26–41
26 Bræður, niðjar Abrahams, og aðrir ykkar á meðal sem óttast Guð. Okkur er sent orð þessa hjálpræðis. 27 Þeir sem í Jerúsalem búa og höfðingjar þeirra þekktu hvorki Jesú [...]
Biblíulestur 12. ágúst – Jes 55.1–11
Sáttmálinn endurnýjaður 1Komið, öll sem þyrst eruð, komið til vatnsins og þér sem ekkert fé eigið, komið, komið, kaupið korn og etið, komið, þiggið korn án silfurs og endurgjaldslaust, bæði [...]
Biblíulestur 11. ágúst – Am 6.1–8
Dómur yfir andvaralausum 1Vei hinum áhyggjulausu á Síon, hinum sjálfsöruggu á Samaríufjalli, höfðingjum hinnar fremstu meðal þjóðanna sem Ísraelsmenn leita til. 2Farið yfir til Kalne [ og litist um. Haldið [...]
Biblíulestur 10. ágúst – Am 5.10–17
10Þeir hata þann sem fellir réttlátan dóm í borgarhliðinu og forðast þann sem segir satt. 11Af því að þér takið vexti af landleigu lítilmagnans og leggið skatt á kornuppskeru hans [...]
Biblíulestur 9. ágúst – Jer 5.23–31
23 Þessi þjóð er þverúðarfull og þrjósk í hjarta. Þeir hafa vikið af leið og horfið burt. 24 Þeir hugsuðu eigi með sér: „Óttumst Drottin, Guð vorn, sem gefur regn, [...]