Biblíulestur – 28. nóvember – 5Mós 33.1–11
Þannig blessaði guðsmaðurinn Móse Ísraelsmenn áður en hann dó:
Drottinn kom frá Sínaí,
hann lýsti þeim frá Seír,
ljómaði frá Paranfjöllum.
Hann steig fram úr flokki þúsunda heilagra,
á hægri hönd honum brann eldur lögmálsins.
Þú sem elskar þjóðirnar,
allir þeirra heilögu eru í hendi þinni.
Þeir hafa fallið þér til fóta,
rísa á fætur er þú skipar.
Móse setti oss lög
sem eru eign safnaðar Jakobs.
Jesjúrún fékk konung
þegar höfðingjar þjóðarinnar komu saman,
ættbálkar Ísraels sameinaðir.
Rúben skal lifa en ekki deyja út
þótt hann verði fámennur.
Þetta sagði hann um Júda:
Heyr, Drottinn, rödd Júda,
leiddu hann heim til þjóðar sinnar.
Hann barðist fyrir hana með höndum sínum,
hjálpa honum gegn fjandmönnum hans.
Um Leví sagði hann:
Túmmím þín hafa verið falin Leví
og úrím þín þeim sem þú treystir.
Þú reyndir hann hjá Mara,
sóttir hann til saka við Meríbavatn,
hann sem sagði um föður sinn og móður:
„Þau hef ég aldrei séð,“
og kannaðist ekki við bræður sína,
leit ekki við börnum sínum.
Því að Levítarnir héldu boð þitt
og hafa varðveitt sáttmála þinn.
Þeir kenna Jakobi fyrirmæli þín
og Ísrael lög þín.
Þeir fórna þér reykelsisilmi
og leggja alfórn á altari þitt.
Blessa þú, Drottinn, eignir hans
og megi þér þóknast verk hans.
Brjót þú lendar fjandmanna hans
og hatursmanna svo að þeir rísi ekki upp aftur.
Biblíulestur 2. ágúst – Róm 6.12–23
12 Látið því ekki syndina ríkja í dauðlegum líkama ykkar svo að þið hlýðnist girndum hans. 13 Ljáið ekki heldur syndinni limi ykkar sem ranglætisvopn. Nei, ljáið heldur Guði sjálf [...]
Biblíulestur 1. ágúst – Lúk 16.10–13
Trúr í því smæsta 10 Sá sem er trúr í því smæsta er einnig trúr í miklu og sá sem er ótrúr í því smæsta er og ótrúr í miklu. [...]
Biblíulestur 31. júlí – Slm 119.81-96
11 81Sál mín tærist af þrá eftir hjálp þinni, ég bíð eftir orði þínu, 82augu mín daprast af þrá eftir orði þínu: Hvenær munt þú hugga mig? 83Ég er orðinn [...]
Biblíulestur 30. júlí – Róm 6.1–11
Skírð til nýs lífs 1 Hvað merkir nú þetta? Eigum við að vera áfram í syndinni til þess að náðin verði því meiri? 2 Fjarri fer því! Við sem dóum [...]
Biblíulestur 29. júlí – Róm 5.1–11
Réttlætt af trú 1 Réttlætt af trú höfum við því frið við Guð sakir Drottins vors Jesú Krists. 2 Hann hefur veitt okkur aðgang að þeirri náð sem við lifum [...]
Biblíulestur 28. júlí – Préd 11.1–8
Starfa meðan dagur er 1Varpaðu brauði þínu út á vatnið. Þegar margir dagar eru liðnir muntu finna það aftur. 2Skiptu hlutanum sundur meðal sjö eða jafnvel átta því að þú [...]