Skírð til nýs lífs

1 Hvað merkir nú þetta? Eigum við að vera áfram í syndinni til þess að náðin verði því meiri? 2 Fjarri fer því! Við sem dóum syndinni, hvernig ættum við að lifa áfram í henni? 3 Eða vitið þið ekki að við öll, sem skírð erum til Krists Jesú, erum skírð til dauða hans? 4 Við erum því dáin og greftruð með honum í skírninni. Og eins og faðirinn vakti Krist frá dauðum með dýrðarmætti sínum, eins eigum við að lifa nýju lífi.
5 Fyrst við erum samgróin honum með því að deyja líkt og hann eigum við einnig að vera samgróin honum með því að rísa upp líkt og hann. 6 Við vitum að okkar gamli maður dó með honum á krossi til þess að líkami syndarinnar yrði að engu og við værum aldrei framar þrælar syndarinnar. 7 Dauður maður er leystur frá syndinni.
8 Ef við erum dáin með Kristi trúum við því að við munum og með honum lifa. 9 Við vitum að Kristur, upp vakinn frá dauðum, deyr ekki framar. Dauðinn drottnar ekki lengur yfir honum. 10 Með dauða sínum dó hann frá syndinni í eitt skipti fyrir öll en lífi sínu lifir hann Guði. 11 Þannig skuluð og þið álíta sjálf ykkur vera dáin frá syndinni en lifandi Guði í Kristi Jesú.