Biblíulestur – 5. júní – Jóh 15.1–17
„Ég er hinn sanni vínviður og faðir minn er vínyrkinn. Hverja þá grein á mér sem ber ekki ávöxt sníður hann af og hverja þá sem ávöxt ber hreinsar hann svo að hún beri meiri ávöxt. Þér eruð þegar hrein vegna orðsins sem ég hef talað til yðar. Verið í mér, þá verð ég í yður. Greinin getur ekki borið ávöxt af sjálfri sér nema hún sé á vínviðnum. Eins getið þér ekki heldur borið ávöxt nema þér séuð í mér. Ég er vínviðurinn, þér eruð greinarnar. Sá ber mikinn ávöxt sem er í mér og ég í honum en án mín getið þér alls ekkert gert. Hverjum sem er ekki í mér verður varpað út eins og greinunum og hann visnar. Þeim er safnað saman og varpað á eld og brennt. Ef þér eruð í mér og orð mín eru í yður, þá biðjið um hvað sem þér viljið og yður mun veitast það. Með því vegsamast faðir minn að þér berið mikinn ávöxt og verðið lærisveinar mínir. Ég hef elskað yður eins og faðirinn hefur elskað mig. Verið stöðug í elsku minni. Ef þér haldið boðorð mín verðið þér stöðug í elsku minni, eins og ég hef haldið boðorð föður míns og er stöðugur í elsku hans.
Þetta hef ég talað til yðar til þess að fögnuður minn sé í yður og fögnuður yðar sé fullkominn. Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hvert annað eins og ég hef elskað yður. Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína. Þér eruð vinir mínir ef þér gerið það sem ég býð yður. Ég kalla yður ekki framar þjóna því þjónninn veit ekki hvað húsbóndi hans gerir. En ég kalla yður vini því ég hef kunngjört yður allt sem ég heyrði af föður mínum. Þér hafið ekki útvalið mig heldur hef ég útvalið yður. Ég hef ákvarðað yður til að fara og bera ávöxt, ávöxt sem varir svo að faðirinn veiti yður sérhvað það sem þér biðjið hann um í mínu nafni. Þetta býð ég yður, að þér elskið hvert annað.
Biblíulestur 2. ágúst – Matt 22.23-46
Guð lifenda 23 Sama dag komu saddúkear til Jesú, en þeir neita því að upprisa sé til, og sögðu við hann: 24 „Meistari, Móse segir: Deyi maður barnlaus þá skal bróðir hans ganga [...]
Biblíulestur 1. ágúst – Matt 22.1-22
Boðið til brúðkaups 1 Þá tók Jesús enn að segja þeim dæmisögu: 2 „Líkt er um himnaríki og konung einn sem gerði brúðkaup sonar síns. 3 Hann sendi þjóna sína að kalla boðsgestina til brúðkaupsins [...]
Biblíulestur 31. júlí – Matt 21.33-46
Vondir vínyrkjar 33 Enn sagði Jesús: „Heyrið aðra dæmisögu: Landeigandi nokkur plantaði víngarð. Hann hlóð garð um hann, gróf fyrir vínþröng og reisti turn, seldi hann síðan vínyrkjum á leigu og [...]
Biblíulestur 30. júlí – Matt 21.18-32
Fíkjutré við veginn 18 Árla morguns hélt Jesús aftur til borgarinnar og kenndi hungurs. 19 Hann sá fíkjutré eitt við veginn og gekk að því en fann þar ekkert nema blöðin tóm. Hann [...]
Biblíulestur 29. júlí – Lúk 16.1-9
Ger reikningsskil 1 Enn sagði Jesús við lærisveina sína: „Maður nokkur ríkur hafði ráðsmann og var honum sagt að ráðsmaðurinn sóaði eigum hans. 2 Ríki maðurinn lét kalla ráðsmanninn fyrir sig og sagði [...]
Biblíulestur 28. júlí – Okv 18.15-24
15Hjarta hins hyggna aflar sér þekkingar og eyra hinna vitru leitar þekkingar. 16Gjöf greiðir þeim veg sem gefur og leiðir hann fram fyrir stórmenni. 17Sá er fyrst flytur mál sitt [...]