Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 4. júní – Jóh 14.15–31

Ef þér elskið mig munuð þér halda boðorð mín. Ég mun biðja föðurinn og hann mun gefa yður annan hjálpara sem verður hjá yður að eilífu, anda sannleikans. Heimurinn getur ekki tekið á móti honum því hann sér hann ekki né þekkir. Þér þekkið hann því hann er hjá yður og verður í yður. Ekki mun ég skilja yður eftir munaðarlaus. Ég kem til yðar. Innan skamms mun heimurinn ekki sjá mig framar. Þér munuð sjá mig því ég lifi og þér munuð lifa. Á þeim degi munuð þér skilja að ég er í föður mínum og þér í mér og ég í yður. Sá sem hefur boðorð mín og heldur þau er sá sem elskar mig. En þann sem elskar mig mun faðir minn elska og ég mun elska hann og birta honum hver ég er.“
Júdas – ekki Ískaríot – sagði við hann: „Drottinn, hverju sætir það að þú vilt birtast okkur en eigi heiminum?“
Jesús svaraði: „Sá sem elskar mig varðveitir mitt orð og faðir minn mun elska hann. Til hans munum við koma og gera okkur bústað hjá honum. Sá sem elskar mig ekki varðveitir ekki mín orð. Orðið, sem þér heyrið, er ekki mitt heldur föðurins sem sendi mig.
Þetta hef ég talað til yðar meðan ég var hjá yður. En hjálparinn, andinn heilagi, sem faðirinn mun senda í mínu nafni mun kenna yður allt og minna yður á allt það sem ég hef sagt yður. Frið læt ég yður eftir, minn frið gef ég yður. Ekki gef ég yður eins og heimurinn gefur. Hjarta yðar skelfist ekki né hræðist. Þér heyrðuð að ég sagði við yður: Ég fer burt og kem til yðar. Ef þér elskuðuð mig yrðuð þér glöð af því að ég fer til föðurins því faðirinn er mér meiri. Nú hef ég sagt yður það áður en það verður svo að þér trúið þegar það gerist. Ég mun ekki framar tala margt við yður því höfðingi heimsins kemur. Í mér á hann ekkert. En heimurinn á að sjá að ég elska föðurinn og geri eins og faðirinn hefur boðið mér.
Standið upp, vér skulum fara héðan.“

Biblíulestur 27. júlí – Matt 21.1-17

Jesú fagnað 1 Þegar þeir nálguðust Jerúsalem og komu til Betfage við Olíufjallið sendi Jesús tvo lærisveina 2 og sagði við þá: „Farið í þorpið hér fram undan ykkur og jafnskjótt munuð þið [...]

Biblíulestur 26. júlí – Esk 24.15-27

Spámaðurinn missir konu sína 15 Orð Drottins kom til mín: 16 Mannssonur, nú svipti ég þig yndi augna þinna með sviplegum dauða. Þú skalt hvorki syrgja, gráta né fella tár. 17 Andvarpaðu í hljóði og [...]

Biblíulestur 25. júlí – Esk 24.1-14

Pottur á hlóðum 1 Orð Drottins kom til mín á tíunda degi tíunda mánaðarins í níunda árinu: 2 Mannssonur, skráðu nákvæmlega dagsetningu dagsins í dag. Konungurinn í Babýlon hóf árás á Jerúsalem einmitt [...]

Biblíulestur 24. júlí – Esk 23.32-49

32 Svo segir Drottinn Guð: Þú skalt drekka bikar systur þinnar, hinn djúpa og víða, sem tekur svo mikið. Þú skalt höfð að athlægi og spotti, 33 komast í vímu og fyllast [...]

Biblíulestur 23. júlí – Esk 23.11-31

11 Systir hennar, Oholíba, varð vitni að þessu. Samt var hún enn spilltari í girnd sinni en systir hennar og gekk enn lengra í ólifnaði sínum en hún. 12 Hún girntist einnig Assýringa, [...]

Biblíulestur 22. júlí – Matt 7.15-23

Af ávöxtum þeirra 15 Varist falsspámenn. Þeir koma til yðar í sauðaklæðum en innra eru þeir gráðugir vargar. 16 Af ávöxtum þeirra skuluð þér þekkja þá. Hvort lesa menn vínber af þyrnum eða [...]

Fara efst