Biblíulestur – 3. júní – Jóh 14.1–14
„Hjarta yðar skelfist ekki. Trúið á Guð og trúið á mig. Í húsi föður míns eru margar vistarverur. Væri ekki svo hefði ég þá sagt yður að ég færi burt að búa yður stað? Þegar ég er farinn burt og hef búið yður stað kem ég aftur og tek yður til mín svo að þér séuð einnig þar sem ég er. Veginn þangað sem ég fer þekkið þér.“
Tómas segir við hann: „Drottinn, við vitum ekki hvert þú ferð, hvernig getum við þá þekkt veginn?“
Jesús segir við hann: „Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins nema fyrir mig. Ef þér hafið þekkt mig munuð þér og þekkja föður minn. Héðan af þekkið þér hann og hafið séð hann.“
Filippus segir við hann: „Drottinn, sýn þú okkur föðurinn. Það nægir okkur.“
Jesús svaraði: „Ég hef verið með yður allan þennan tíma og þú þekkir mig ekki, Filippus? Sá sem hefur séð mig hefur séð föðurinn. Hvernig segir þú þá: Sýn þú oss föðurinn? Trúir þú ekki að ég er í föðurnum og faðirinn í mér? Það sem ég segi við yður eru ekki mín orð. Faðirinn, sem í mér er, vinnur sín verk. Trúið mér að ég er í föðurnum og faðirinn í mér. Ef þér trúið ekki orðum mínum trúið þá vegna sjálfra verkanna. Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem trúir á mig mun einnig gera þau verk sem ég geri. Og hann mun gera meiri verk en þau því ég fer til föðurins. Og hvers sem þér biðjið í mínu nafni það mun ég gera svo að faðirinn vegsamist í syninum. Ef þér biðjið mig einhvers í mínu nafni mun ég gera það.
Biblíulestur 21. júlí – Slm 45.1-6
1 Til söngstjórans. Lag: Liljur. Kóraítamaskíl. Brúðkaupskvæði. 2Hjarta mitt svellur af ljúfum orðum, konungi flyt ég kvæði mitt, tunga mín er sem penni hraðritara. 3Fegurri ert þú öðrum mönnum, yndi streymir [...]
Biblíulestur 20. júlí – Esk 23.1-10
Systurnar Samaría og Jerúsalem 1 Orð Drottins kom til mín: 2 Mannssonur, einu sinni voru tvær konur, dætur sömu móður. 3 Þær stunduðu ólifnað í Egyptalandi, þær hóruðust þar á æskuárum. Þar þukluðu menn brjóst [...]
Biblíulestur 19. júlí – Esk 22.17-31
Ísrael í bræðsluofninum 17 Orð Drottins kom til mín: 18 Mannssonur, Ísraelsmenn eru orðnir mér sori. Þeir eru allir kopar, tin, járn og blý í bræðsluofni. Þeir eru orðnir sorasilfur. 19 Segðu því: Svo [...]
Biblíulestur 18. júlí – Esk 22.1-16
Borgin blóði drifna 1 Orð Drottins kom til mín: 2 Mannssonur, viltu ekki dæma, viltu ekki dæma þessa morðseku borg? Leiddu henni fyrir sjónir öll hin viðurstyggilegu verk hennar 3 og segðu: Svo segir [...]
Biblíulestur 17. júlí – Esk 21.23-37
Sverð konungsins í Babýlon gegn Jerúsalem 23 Orð Drottins kom til mín: 24 Mannssonur, leggðu tvo vegi sem sverð konungsins í Babýlon skal koma eftir. Báðir vegirnir skulu liggja frá sama landi. [...]
Biblíulestur 16. júlí – Esk 21.1-22
Sverð Drottins 1 Orð Drottins kom til mín: 2 Mannssonur, horfðu í suður og láttu boðskap þinn streyma gegn suðrinu, komdu fram sem spámaður og láttu boðskap þinn streyma gegn skóginum í [...]