11 Systir hennar, Oholíba, varð vitni að þessu. Samt var hún enn spilltari í girnd sinni en systir hennar og gekk enn lengra í ólifnaði sínum en hún. 12 Hún girntist einnig Assýringa, landstjóra og fyrirmenn, fagurbrynjaða riddara á hestum, allt voru það glæsileg ungmenni. 13 Ég sá að hún saurgaði sig. Báðar systurnar héldu sömu leið 14 en hún gekk lengra í ólifnaði sínum. Hún sá myndir af karlmönnum meitlaðar í vegg. Þetta voru rauðmálaðar lágmyndir af Kaldeum 15 sem höfðu klæði um lendar sér og flaksandi höfuðdúk. Myndirnar sýndu foringja á stríðsvögnum, Babýloníumenn upprunna í Kaldeu. 16 Um leið og hún sá þá tók hún að girnast þá og sendi boðbera til þeirra í Kaldeu. 17 Þá komu Babýloníumenn til hennar, til ástarhvílu hennar og saurguðu hana með ólifnaði sínum. Þegar hún hafði saurgast af þeim gerðist hún þeim fráhverf.
18 Þar sem hún hafði opinberað ólifnað sinn og berað blygðun sína gerðist ég henni fráhverfur alveg eins og ég varð systur hennar fráhverfur. 19 En hún jók ólifnað sinn og minntist æskuára sinna þegar hún stundaði ólifnað í Egyptalandi 20 og hún tók að girnast ástmenn sína sem voru jafn hreðjamiklir og asnar og stóð sæðisgusan úr þeim sem úr stóðhestum. 21 Þú saknaðir ólifnaðar æsku þinnar þegar menn þukluðu brjóst þín í Egyptalandi og gældu við meyjarbarm þinn.
22 Þess vegna, Oholíba, segir Drottinn Guð: Nú egni ég ástmenn þína, sem þú ert orðin fráhverf, gegn þér. Ég stefni þeim gegn þér úr öllum áttum, 23 Babýloníumönnum, öllum Kaldeum, mönnum frá Pekód, Sjóa og Kóa, að auki öllum Assýringum, hinum glæsilegu ungmennum sem allir eru landstjórar og fyrirmenn, stríðsvagnaforingjar og háttsettir menn, allir ríðandi hestum. 24 Þeir munu halda gegn þér hópum saman í vögnum með hvínandi hjólum ásamt liðsafnaði framandi þjóða. Þeir munu umkringja þig, búnir stórum og smáum skjöldum og hjálmum. Ég mun leggja málið fyrir þá og þeir munu dæma þig eftir lögum sínum. 25 Ég mun beina afbrýði minni gegn þér svo að þeir fari grimmdarlega með þig. Þeir munu skera af þér nef og eyru og það sem eftir verður af þér skal falla fyrir sverði. Þeir munu taka frá þér syni þína og dætur og það sem þá verður eftir af þér gleypir eldur. 26 Þeir munu svipta þig klæðum og taka af þér skartgripi þína. 27 Með þessu bind ég enda á ólifnað þinn og hórdóm sem þú hófst í Egyptalandi. Þú munt ekki lengur horfa löngunaraugum til friðla þinna og ekki hugsa framar til Egyptalands.
28 Því að svo segir Drottinn Guð: Ég sel þig í hendur þeim sem þú hatar, í hendur þeirra sem girnd þín hefur orðið fráhverf. 29 Þeir munu sýna þér hatur og svipta þig öllum eigum þínum og skilja þig eftir nakta og klæðlausa. Þú verður hórsek, blygðun þín beruð. Ólifnaður þinn og hórdómur 30 hafa leitt þetta yfir þig af því að þú stundaðir ólifnað með framandi þjóðum og saurgaðir þig á skurðgoðum þeirra. 31 Þú hefur gengið sömu leið og systir þín, þess vegna rétti ég þér bikar hennar.