Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 6. júní – Jóh 15.18–16.4

Ef heimurinn hatar yður þá vitið að hann hefur hatað mig fyrr en yður. Væruð þér af heiminum mundi heimurinn elska sína. Heimurinn hatar yður af því að þér eruð ekki af heiminum heldur hef ég útvalið yður úr heiminum. Minnist orðanna sem ég sagði við yður: Þjónn er ekki meiri en herra hans. Hafi menn ofsótt mig þá munu þeir líka ofsækja yður. Hafi þeir varðveitt orð mitt munu þeir líka varðveita yðar. En allt þetta munu þeir yður gera vegna nafns míns af því að þeir þekkja eigi þann sem sendi mig. Hefði ég ekki komið og talað til þeirra væru þeir ekki sekir um synd. En nú hafa þeir ekkert til afsökunar synd sinni. Sá sem hatar mig hatar og föður minn. Hefði ég ekki unnið meðal þeirra þau verk sem enginn annar hefur gert væru þeir ekki sekir um synd. En nú hafa þeir séð þau og hata þó bæði mig og föður minn. Svo hlaut að rætast orðið sem ritað er í lögmáli þeirra: Þeir hötuðu mig án saka.
Þegar hjálparinn kemur, sem ég sendi yður frá föðurnum, sannleiksandinn, er út gengur frá föðurnum, mun hann vitna um mig. Þér skuluð einnig vitni bera því þér hafið verið með mér frá upphafi.
Þetta hef ég talað til yðar svo að þér fallið ekki frá. Þeir munu gera yður samkunduræk. Já, sú stund kemur að hver sem líflætur yður þykist veita Guði þjónustu. Þetta munu þeir gera af því þeir þekkja hvorki föðurinn né mig. Þetta hef ég talað til yðar til þess að þér minnist þess að ég sagði yður það þegar stund þeirra kemur.

Biblíulestur 7. ágúst – Mt 24.1-22

Skelfist ekki 1 Jesús gekk út úr helgidóminum og hélt brott. Þá komu lærisveinar hans og vildu sýna honum byggingar helgidómsins. 2 Hann sagði við þá: „Sjáið þið allt þetta? [...]

Biblíulestur 6. ágúst – Mt. 23.23-39

23 Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér gjaldið tíund af myntu, anís og kúmeni en hirðið ekki um það sem mikilvægast er í lögmálinu, réttlæti, miskunn og trúfesti. Þetta [...]

Biblíulestur 4. ágúst – Slm 45.7-18

7Hásæti þitt, Guð, stendur um aldir alda, veldissproti ríkis þíns er réttlætissproti. 8Þú elskar réttlæti og hatar ranglæti, þess vegna hefur Guð, þinn Guð, smurt þig fagnaðarolíu fremur en félaga [...]

Biblíulestur 3. ágúst – Matt 23.1-22

Einn er yðar meistari 1 Þá talaði Jesús til mannfjöldans og lærisveina sinna: 2 „Á stóli Móse sitja fræðimenn og farísear. 3 Því skuluð þér gera og halda allt sem þeir segja yður en eftir [...]

Fara efst