Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 21. júní – Slm 102.24–29

Hann bugaði kraft minn á miðri ævi,
fækkaði ævidögum mínum.
Ég segi: „Guð minn, sviptu mér ekki burt á miðri ævi
því að ár þín vara frá kyni til kyns.“
Í öndverðu grundvallaðir þú jörðina
og himinninn er verk handa þinna;
þau munu líða undir lok en þú varir,
þau munu fyrnast sem fat,
þú leggur þau frá þér sem klæði og þau hverfa
en þú ert hinn sami og ár þín fá engan enda.
Börn þjóna þinna munu búa óhult
og niðjar þeirra standa stöðugir fyrir augliti þínu.

Biblíulestur 10. nóvember – Slm 54.1-9

1 Til söngstjórans. Með strengjaleik. Maskíl eftir Davíð 2 þegar Sifítar komu og sögðu við Sál: „Davíð felur sig hjá oss.“ 3Hjálpa mér, Guð, með nafni þínu, rétt hlut minn [...]

Biblíulestur 8. nóvember – Esk 43.13-27

Brennifórnaraltarið 13 Þetta er stærð altarisins mæld í álnum en hver alin samsvarar venjulegri alin að viðbættri einni þverhönd: Rennan umhverfis það var ein alin á dýpt og ein á [...]

Fara efst