Biblíulestur – 22. júní – Lúk 16.19–31
Jesús sagði þeim þessa dæmisögu: „Einu sinni var maður nokkur ríkur er klæddist purpura og dýru líni og lifði hvern dag í dýrlegum fagnaði. En fátækur maður, hlaðinn kaunum, lá fyrir dyrum hans og hét sá Lasarus. Feginn vildi hann seðja sig á því er féll af borði ríka mannsins og jafnvel hundar komu og sleiktu kaun hans. En nú gerðist það að fátæki maðurinn dó og báru hann englar í faðm Abrahams. Ríki maðurinn dó líka og var grafinn.
Og í helju, þar sem hann var í kvölum, hóf hann upp augu sín og sá Abraham í fjarska og Lasarus við brjóst hans. Þá kallaði hann: Faðir Abraham, miskunna þú mér og send Lasarus að hann dýfi fingurgómi sínum í vatn og kæli tungu mína því að ég kvelst í þessum loga.
Abraham sagði: Minnstu þess, barn, að þú hlaust þín gæði meðan þú lifðir og Lasarus böl á sama hátt. Nú er hann hér huggaður en þú kvelst. Auk alls þessa er mikið djúp staðfest milli vor og yðar svo að þeir er héðan vildu fara yfir til yðar geti það ekki og eigi verði heldur komist þaðan yfir til vor. En hann sagði: Þá bið ég þig, faðir, að þú sendir hann í hús föður míns, en ég á fimm bræður, til þess að vara þá við svo þeir komi ekki líka í þennan kvalastað. En Abraham segir: Þeir hafa Móse og spámennina, hlýði þeir þeim. Hinn svaraði: Nei, faðir Abraham, en ef einhver kæmi til þeirra frá hinum dauðu mundu þeir taka sinnaskiptum. En Abraham sagði við hann: Ef þeir hlýða ekki Móse og spámönnunum láta þeir ekki heldur sannfærast þótt einhver rísi upp frá dauðum.“
Biblíulestur 17. nóvember – Slm 55.1-16
1 Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðsmaskíl. 2Hlýð, Guð, á bæn mína, fel þig eigi þegar ég sárbæni þig. 3Hlusta og svara mér, ég er órór og kveina, 4skelfingu lostinn yfir [...]
Biblíulestur 16. nóvember – Esk 46.16-24
16 Svo segir Drottinn Guð: Ef landshöfðinginn gefur einhverjum af sonum sínum hluta af erfðalandi sínu að gjöf skal hún verða eign sona hans. Hún verður eign þeirra sem erfðaland. [...]
Biblíulestur 15. nóvember – Esk 46.4-15
4 Brennifórnin, sem landshöfðinginn á að færa Drottni á hvíldardegi, er sex lýtalaus lömb og einn lýtalaus hrútur. 5 Kornfórnin er ein efa með hrút en með lömbum svo mikið [...]
Biblíulestur 14. nóvember – Esk 45.13-46.3
45. kafli 13 Þetta er afgjaldið sem þið skuluð greiða: Einn sjötta úr efu af hverjum gómer hveitis og einn sjötta efu af hverjum gómer byggs. 14 Ákvæði um olíu [...]
Biblíulestur 13. nóvember – Esk 45.1-12
Landareign Drottins og afnotaréttur Levíta og presta 1 Þegar þið skiptið landinu með hlutkesti í erfðahluti skuluð þið taka hluta af því í afgjald handa Drottni. Það er heilög landspilda, [...]
Biblíulestur 12. nóvember – Esk 44.10-31
10 En Levítarnir fjarlægðust mig þegar Ísrael villtist frá mér og elti skurðgoð sín og þeir skulu bera afleiðingar sektar sinnar. 11 Í helgidómi mínum eiga þeir að annast vörslu [...]