Biblíulestur – 8. maí – 1Kor 13.1–13
Þótt ég talaði tungum manna og engla
en hefði ekki kærleika
væri ég hljómandi málmur eða hvellandi bjalla.
Og þótt ég hefði spádómsgáfu
og vissi alla leyndardóma og ætti alla þekking
og þótt ég hefði svo takmarkalausa trú að færa mætti fjöll úr stað
en hefði ekki kærleika,
væri ég ekki neitt.
Og þótt ég deildi út öllum eigum mínum
og þótt ég framseldi líkama minn til þess að verða brenndur
en hefði ekki kærleika,
væri ég engu bættari.
Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður. Kærleikurinn öfundar ekki.
Kærleikurinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp.
Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki síns eigin,
hann reiðist ekki, er ekki langrækinn.
Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni en samgleðst sannleikanum.
Hann breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt.
Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi.
En spádómsgáfur, þær munu líða undir lok,
og tungur, þær munu þagna, og þekking, hún mun líða undir lok.
Því að þekking vor er í molum og spádómur vor er í molum.
En þegar hið fullkomna kemur líður það undir lok sem er í molum.
Þegar ég var barn talaði ég eins og barn,
hugsaði eins og barn og ályktaði eins og barn.
En þegar ég var orðinn fulltíða lagði ég niður barnaskapinn.
Nú sjáum vér svo sem í skuggsjá, í ráðgátu,
en þá munum vér sjá augliti til auglitis.
Nú er þekking mín í molum
en þá mun ég gjörþekkja eins og ég er sjálfur gjörþekktur orðinn.
En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt,
en þeirra er kærleikurinn mestur.
Biblíulestur 8. október – Dóm 3.7-25
Sögur af dómurunum Otníel 7 Ísraelsmenn gerðu það sem illt var í augum Drottins, gleymdu Drottni, Guði sínum, og þjónuðu bæði Baölum og Asérum. 8 Þá upptendraðist reiði Drottins gegn [...]
Biblíulestur 7. október – Matt 9.1-8
Syndir fyrirgefnar 1 Þá sté Jesús í bát og hélt yfir um og kom til borgar sinnar.[ 2 Þar færa menn honum lama mann sem lá í rekkju. Þegar Jesús [...]
Biblíulestur 6. október – Slm 51.1-8
1 Til söngstjórans. Sálmur Davíðs, 2 þegar Natan spámaður kom til hans eftir að Davíð hafði gengið inn til Batsebu. 3Guð, vertu mér náðugur sakir elsku þinnar, afmá brot mín [...]
Biblíulestur 5. október – Dóm 2.16-3.6
2. kafli 16 En Drottinn vakti upp dómara og þeir frelsuðu þá úr höndum þeirra sem rændu þá. 17 En þeir hlýddu ekki heldur dómurum sínum en tóku fram hjá [...]
Biblíulestur 4. október – Dóm 2.1-15
Engill Drottins boðar hegningu 1 Engill Drottins kom frá Gilgal til Bókím og mælti: „Ég leiddi ykkur út af Egyptalandi og færði ykkur í það land sem ég sór feðrum [...]
Biblíulestur 3. október – Dóm 1.22-36
22 Ættmenn Jósefs fóru líka upp til Betel og Drottinn var með þeim. 23 Og ættmenn Jósefs létu njósna í Betel en borgin hét áður Lús. 24 Þá sáu njósnararnir [...]