Biblíulestur – 24. júní – Lúk 1.57–67, 76–80
Nú kom sá tími að Elísabet skyldi verða léttari og ól hún son. Og nágrannar hennar og ættmenn heyrðu hversu mikla miskunn Drottinn hafði auðsýnt henni og samfögnuðu henni.
Á áttunda degi komu þeir að umskera sveininn og vildu þeir láta hann heita Sakaría í höfuðið á föður sínum. Þá mælti móðir hans: „Eigi skal hann svo heita heldur Jóhannes.“
En þeir sögðu við hana: „Enginn er í ætt þinni sem heitir því nafni.“ Bentu þeir þá föður hans að hann léti þá vita hvað sveinninn skyldi heita.
Hann bað um spjald og reit: „Jóhannes er nafn hans,“ og urðu þeir allir undrandi. Jafnskjótt laukst upp munnur hans og tunga. Hann fór að tala og lofaði Guð. En ótta sló á alla nágranna þeirra og þótti þessi atburður miklum tíðindum sæta í allri fjallbyggð Júdeu. Og allir, sem þetta heyrðu, festu það í huga sér og sögðu: „Hvers má vænta af þessu barni?“ Því að hönd Drottins var með honum.
En Sakaría faðir hans fylltist heilögum anda og mælti af spámannlegri andagift: …
Og þú, sveinn, munt nefndur verða spámaður Hins hæsta
því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu
sem er fyrirgefning synda þeirra.
Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors.
Hún lætur upp renna sól af hæðum að vitja vor
og lýsa þeim sem sitja í myrkri og skugga dauðans
og beina fótum vorum á friðar veg.
En sveinninn óx og varð þróttmikill í anda. Hann dvaldist í óbyggðum til þess dags er hann skyldi koma fram fyrir Ísrael.
Biblíulestur 29. nóvember – Dóm 15.1-16.3
15. kafli Afreksverk Samsonar 1 Að nokkrum tíma liðnum kom Samson um hveitiuppskerutímann að vitja konu sinnar og hafði með sér kiðling. Hann sagði við föður hennar: „Hleyptu mér inn [...]
Biblíulestur 28. nóvember – Dóm 14.1-20
Samson gengur að eiga konu af ætt Filistea 1 Samson fór niður til Timna og sá þar konu eina. Hún var ein af dætrum Filistea. 2 Síðan fór hann heim [...]
Biblíulestur 27. nóvember – Dóm 13.1-25
Fæðing Samsonar 1 Ísraelsmenn gerðu enn að nýju það sem illt var í augum Drottins. Þá gaf Drottinn þá í hendur Filisteum í fjörutíu ár. 2 Maður er nefndur Manóa. [...]
Biblíulestur 26. nóvember – Dóm 12.1-15
Jefta berst við Efraímíta 1 Efraímítum var stefnt saman. Þeir héldu í norður og sögðu við Jefta: „Hví fórst þú að berjast við Ammóníta og kallaðir okkur ekki til liðs [...]
Biblíulestur 25. nóvember – Matt 25.31-46
Þegar Mannssonurinn kemur 31 Þegar Mannssonurinn kemur í dýrð sinni og allir englar með honum, þá mun hann sitja í dýrðarhásæti sínu. 32 Allar þjóðir munu safnast frammi fyrir honum [...]
Biblíulestur 24. nóvember – Okv 20.16-30
16Taktu skikkjuna af þeim sem hefur gengið í ábyrgð fyrir ókunnugan, taktu veð af þeim sem hefur gengið í ábyrgð fyrir framandi. 17Sætt er svikabrauðið en eftir á fyllist munnurinn [...]