Biblíulestur – 25. júní – Jóh 19.28–42
Jesús vissi að allt var þegar fullkomnað. Þá sagði hann til þess að ritningin rættist: „Mig þyrstir.“
Þar stóð ker fullt af ediki. Hermennirnir vættu njarðarvött í ediki, settu hann á ísópslegg og báru að munni honum. Þegar Jesús hafði fengið edikið sagði hann: „Það er fullkomnað.“ Þá hneigði hann höfuðið og gaf upp andann.
Nú var aðfangadagur og til þess að líkin væru ekki á krossunum hvíldardaginn báðu Gyðingar Pílatus að láta brjóta fótleggi þeirra og taka líkin ofan enda var mikil helgi þess hvíldardags. Hermenn komu því og brutu fótleggi þeirra sem með honum voru krossfestir, fyrst annars, svo hins. Þegar þeir komu að Jesú og sáu að hann var þegar dáinn brutu þeir ekki fótleggi hans. En einn af hermönnunum stakk spjóti sínu í síðu hans og rann jafnskjótt út blóð og vatn. Sá er séð hefur vitnar þetta svo að þið trúið líka og vitnisburður hans er sannur. Og hann veit að hann segir satt. Þetta varð til þess að ritningin rættist: „Ekkert bein hans skal brotið.“ Og enn segir önnur ritning: „Þeir munu horfa til hans sem þeir lögðu í gegn.“
Jósef frá Arímaþeu, sem var lærisveinn Jesú en á laun af ótta við ráðamenn Gyðinga, bað síðan Pílatus að mega taka ofan líkama Jesú. Pílatus leyfði það. Hann kom þá og tók ofan líkama hans. Þar kom líka Nikódemus, er fyrrum hafði komið til hans um nótt, og hafði með sér blöndu af myrru og alóe, nær hundrað pundum. Þeir tóku nú líkama Jesú og sveipuðu hann línblæjum með ilmjurtunum eins og Gyðingar búa lík til greftrunar. En á staðnum, þar sem hann var krossfestur, var grasgarður og í garðinum ný gröf sem enginn hafði enn verið lagður í. Þar lögðu þeir Jesú því það var aðfangadagur Gyðinga og gröfin var nærri.
Biblíulestur 5. desember – Dóm 18.1-20
Landvinningar Dans 1 Í þá daga var enginn konungur í Ísrael og í þá daga voru niðjar Dans enn að leita sér að arfleifð til búsetu því að þeim hafði [...]
Biblíulestur 4. desember – Dóm 17.1-13
Lok dómaratímans Skurðgoð Míka 1 Maður hét Míka. Hann var frá Efraímsfjöllum. 2 Hann sagði við móður sína: „Þeir ellefu hundruð siklar silfurs, sem voru teknir frá þér og þú [...]
Biblíulestur 3. desember – Dóm 16.23-31
Samson deyr 23 Nú söfnuðust höfðingjar Filistea saman til þess að færa Dagón,[ guði sínum, fórn mikla og gera sér glaðan dag enda sögðu þeir: „Guð okkar hefur selt óvininn [...]
Biblíulestur 2. desember – Lúk 4.16-21 – Fyrsti sunnudagur í aðventu
16 Jesús kom til Nasaret, þar sem hann var alinn upp, og fór að vanda sínum á hvíldardegi í samkunduna og stóð upp til að lesa. 17 Var honum fengin [...]
Biblíulestur 1. desember – Slm 55.17-24
17En ég hrópa til Guðs og Drottinn mun hjálpa mér. 18Morgun, kvöld og miðjan dag kveina ég og styn og hann bænheyrir mig, 19hann endurleysir sál mína og gefur mér [...]
Biblíulestur 30. nóvember – Dóm 16.4-22
Samson og Dalíla 4 Eftir þetta bar svo við að Samson felldi ástarhug til konu einnar í Sórekdal. Hún hét Dalíla. 5 Höfðingjar Filistea komu til hennar og sögðu við [...]