Biblíulestur – 26. júní – Jóh 20.1–18
Fyrsta dag vikunnar kemur María Magdalena til grafarinnar svo snemma að enn var myrkur og sér steininn tekinn frá gröfinni. Hún hleypur því og kemur til Símonar Péturs og hins lærisveinsins sem Jesús elskaði og segir við þá: „Þeir hafa tekið Drottin úr gröfinni og við vitum ekki hvar þeir hafa lagt hann.“
Pétur fór þá út og hinn lærisveinninn og þeir komu til grafarinnar. Þeir hlupu báðir saman. En hinn lærisveinninn hljóp hraðar, fram úr Pétri, og kom á undan að gröfinni. Hann laut inn og sá línblæjurnar liggjandi en fór samt ekki inn. Nú kom líka Símon Pétur á eftir honum og fór inn í gröfina. Hann sá línblæjurnar liggja þar og sveitadúkinn sem verið hafði um höfuð hans. Sveitadúkurinn lá ekki með línblæjunum heldur sér, samanvafinn á öðrum stað.
Þá gekk einnig inn hinn lærisveinninn sem komið hafði fyrr til grafarinnar. Hann sá og trúði. Þeir höfðu ekki enn skilið ritninguna, að hann ætti að rísa upp frá dauðum. Síðan fóru lærisveinarnir aftur heim til sín.
En María stóð úti fyrir gröfinni og grét. Grátandi laut hún inn í gröfina og sá tvo engla í hvítum klæðum sitja þar sem líkami Jesú hafði legið, annan til höfða og hinn til fóta. Þeir segja við hana: „Kona, hví grætur þú?“
Hún svaraði: „Þeir hafa tekið brott Drottin minn og ég veit ekki hvar þeir hafa lagt hann.“ Að svo mæltu snýr hún sér við og sér Jesú standa þar. En hún vissi ekki að það var Jesús.
Jesús segir við hana: „Kona, hví grætur þú? Að hverjum leitar þú?“
Hún hélt að hann væri grasgarðsvörðurinn og sagði við hann: „Herra, ef þú hefur borið hann burt þá segðu mér hvar þú hefur lagt hann svo að ég geti sótt hann.“
Jesús segir við hana: „María!“
Hún snýr sér að honum og segir á hebresku: „Rabbúní!“ (Rabbúní þýðir meistari.)
Jesús segir við hana: „Snertu mig ekki. Ég er ekki enn stiginn upp til föður míns. En farðu til bræðra minna og seg þeim: Ég stíg upp til föður míns og föður ykkar, til Guðs míns og Guðs ykkar.“
María Magdalena kemur og boðar lærisveinunum: „Ég hef séð Drottin.“ Og hún flutti þeim það sem hann hafði sagt henni.
Biblíulestur 11. desember – Dóm 20.1-17
Refsidómur yfir Benjamín 1 Þá lögðu allir Ísraelsmenn af stað og safnaðist lýðurinn saman sem einn maður, frá Dan til Beerseba og einnig Gíleaðlands, frammi fyrir Drottni í Mispa. 2 [...]
Biblíulestur 10. desember – Dóm 19.22-30
22 En meðan þau voru að matast umkringdu illmenni nokkur úr borginni húsið, börðu á hurðina og kölluðu til húsbóndans, gamla mannsins: „Leiddu út manninn sem kominn er til þín [...]
Biblíulestur 9. desember – Mrk 13.31-37 – Annar sunnudagur í aðventu
31 Himinn og jörð munu líða undir lok en orð mín munu aldrei undir lok líða. Vakið 32 En þann dag eða stund veit enginn, hvorki englar á himni né [...]
Biblíulestur 8. desember – Slm 56.1-14
1 Til söngstjórans. Lag: Dúfan í fjarlægum eikilundi. Miktam eftir Davíð þá er Filistear gripu hann í Gat. 2Ver mér náðugur, Guð, því að menn ofsækja mig, allan daginn þrengja [...]
Biblíulestur 7. desember – Dóm 19.1-21
Níðingsverk í Gíbeu 1 Um þær mundir bar svo til meðan enn var enginn konungur í Ísrael að Levíti nokkur bjó inni við fjarlægustu Efraímsfjöll. Tók hann sér hjákonu frá [...]
Biblíulestur 6. desember – Dóm 18.21-31
21 Sneru þeir nú við förinni og héldu af stað en sendu börn og búsmala og verðmæta hluti á undan sér. 22Þegar þeir voru komnir langt í burt frá húsi [...]