Biblíulestur – 27. júní – Jóh 20.19–31
Um kvöldið þennan fyrsta dag vikunnar voru lærisveinarnir saman og höfðu læst dyrum af ótta við Gyðinga. Þá kom Jesús, stóð mitt á meðal þeirra og sagði við þá: „Friður sé með yður!“ Þegar hann hafði þetta mælt sýndi hann þeim hendur sínar og síðu. Lærisveinarnir urðu glaðir er þeir sáu Drottin. Þá sagði Jesús aftur við þá: „Friður sé með yður. Eins og faðirinn hefur sent mig, eins sendi ég yður.“ Og er hann hafði sagt þetta andaði hann á þá og sagði: „Meðtakið heilagan anda. Ef þér fyrirgefið einhverjum syndirnar fyrirgefur Guð þær. Ef þér synjið einhverjum fyrirgefningar synjar Guð þeim.“
En einn af þeim tólf, Tómas, nefndur tvíburi, var ekki með þeim þegar Jesús kom. Hinir lærisveinarnir sögðu honum: „Við höfum séð Drottin.“
En hann svaraði: „Sjái ég ekki naglaförin í höndum hans og geti sett fingur minn í naglaförin og lagt hönd mína í síðu hans, mun ég alls ekki trúa.“
Að viku liðinni voru lærisveinar hans aftur saman inni og Tómas með þeim. Dyrnar voru læstar. Þá kemur Jesús, stendur mitt á meðal þeirra og segir: „Friður sé með yður!“ Síðan segir hann við Tómas: „Kom hingað með fingur þinn og sjá hendur mínar og kom með hönd þína og legg í síðu mína og vertu ekki vantrúaður, vertu trúaður.“
Tómas svaraði: „Drottinn minn og Guð minn!“
Jesús segir við hann: „Þú trúir af því þú hefur séð mig. Sælir eru þeir sem hafa ekki séð og trúa þó.“
Jesús gerði einnig mörg önnur tákn í augsýn lærisveina sinna sem eigi eru skráð á þessa bók. En þetta er ritað til þess að þið trúið að Jesús sé Kristur, sonur Guðs, og að þið í trúnni eigið líf í hans nafni.
Biblíulestur 17. desember – 2Mós 1.1-22
Brottförin frá Egyptalandi Niðjar Jakobs í Egyptalandi 1 Þetta eru nöfn sona Ísraels sem komu til Egyptalands með Jakobi. Hver um sig hafði komið ásamt fjölskyldu sinni: 2 Rúben, Símeon, [...]
Biblíulestur 16. desember – Lúk 3.1-18 – Þriðji sunnudagur í aðventu
Jóhannes skírir og kennir 1 Á fimmtánda stjórnarári Tíberíusar keisara, þegar Pontíus Pílatus var landstjóri í Júdeu en Heródes fjórðungsstjóri í Galíleu, Filippus, bróðir hans, í Ítúreu og Trakónítishéraði og [...]
Biblíulestur 15. desember – Slm 57.1-12
1 Til söngstjórans. Lag: Spill eigi. Miktam eftir Davíð þá er hann flýði inn í hellinn undan Sál. 2Ver mér náðugur, Guð, ver mér náðugur því að hjá þér leita [...]
Biblíulestur 14. desember – Dóm 21.1-25
Ísrael finnur konur handa Benjamínítum 1 Ísraelsmenn höfðu unnið eið í Mispa og sagt: „Enginn okkar skal gifta Benjamíníta dóttur sína.“ 2 Og fólkið fór til Betel, dvaldi þar fram [...]
Biblíulestur 13. desember – Dóm 20.30-48
30 Ísraelsmenn héldu gegn niðjum Benjamíns á þriðja degi og fylktu þeir sér gegnt Gíbeu, eins og í fyrri skiptin. 31 Þá fóru Benjamínítar út á móti liðinu, létu blekkjast [...]
Biblíulestur 12. desember – Dóm 20.18-29
18 Ísraelsmenn héldu af stað, fóru upp til Betel, gengu til frétta við Guð og spurðu: „Hver okkar skal fara fyrstur í hernað gegn niðjum Benjamíns?“ Drottinn svaraði: „Júda skal [...]